Lífið

Tískuheimurinn telur hana of feita: „Þetta er fáránlegt og ég þoli þetta ekki“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Agnes Hedengård er 19 ára.
Agnes Hedengård er 19 ára.
Sænska fyrirsætan Agnes Hedengård segist ekki fá nein verkefni þar sem bransinn telur hana vera of stóra.

Hedengård fer ekki fögrum orðum um tískuheiminn. Hún hafnaði í öðru sæti í raunveruleikaþættinum Sweden’s Next Top Model en síðan þá hefur henni ítrekað verið hafnað af auglýsingaframleiðendum.

Í myndbandi sem hún birtir á YouTube segir þessi 19 ára fyrirsæta ávallt fá ágætt viðbrögð frá bransanum en þegar hún gefur upp stærð sína þá breytist hljóðið snarlega í þeim sem sjá um ráðningar á fyrirsætum.

Í myndbandinu bendir hún á þá líkamsparta sem taldir eru of stórir.

„Þeim finnst rassinn á mér vera of stór og það sama má segja um mjaðmirnar á mér,“ segir Hedengård

„Ég fæ oft að heyra að ég sé of stór og verði að koma mér í betra form. Markmiðið mitt með þessu myndbandi er að sýna fram á það að stór hluti af tískuheiminum finnst þetta í raun og veru vera of stórt. Þetta er fáránlegt og ég þoli þetta ekki.“

HEJ! Kolla in min video där jag pratar kroppsideal. Länk finns i bion! ️@hedengard @hedengard

A photo posted by Agnes Hedengård (@hedengard) on

A photo posted by Agnes Hedengård (@hedengard) on






Fleiri fréttir

Sjá meira


×