Tíska og hönnun

Tískudrósir trylltar í Friðrik Dór

Guðrún Ansnes skrifar
Erna Bergmann sveiflaði ljósum í versluninni Suit og dansaði við Frikka Dór ásamt fullri búð af gestum.
Erna Bergmann sveiflaði ljósum í versluninni Suit og dansaði við Frikka Dór ásamt fullri búð af gestum. mynd/SagaSig
„Við erum banæstar í Frikka Dór og lagið hans Í síðasta skipti hefur verið „guilty pleasure“ allan undirbúninginn fyrir RFF. Svo þetta lá beinast við,“ segir Erna Bergmann, listrænn stjórnandi hjá íslenska hönnunnarmerkinu Eyland.

Friðrik Dór Jónsson mætti sem leynigestur í eftirpartí Eyland og sló rækilega í gegn meðal viðstaddra. „Fólk umturnaðist algjörlega og þegar lagið kláraðist var hann klappaður upp aftur. Hann var meira en til í að endurtaka leikinn en þá klikkaði hljóðkerfið,“ útskýrir Erna.

Friðrik brást ekki áhorfendum frekar en fyrri daginn og hóf upp raust sína með þeim afleiðingum að salurinn fylgdi með. „Stemningin var hreint út sagt mögnuð, þetta var fullkominn lokahnykkur á góðri helgi.“

Þema partísins var „anti-fashion“ sem féll greinilega vel í kramið eftir heila helgi af hátísku. „Við fengum Rósu Birgittu til að plötusnúðast og hún spilaði eingöngu geggjuð stuðlög. Það var ekkert „deep house“ í boði,“ segir Erna og skellir upp úr.

Partíið var haldið í versluninni Suit við Skólavörðustíg sem var algjörlega umbreytt í skemmtistað fyrir fjörið. „Hér var allt hreinsað út, afgreiðsluborðinu breytt í bar og bláum ljósum komið fyrir. Við dönsuðum svo uppi á borðum og fögnuðum frábærum viðtökum Eyland á RFF.“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×