Innlent

Tippari vann 15,5 milljónir

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Valgarður
Glúrinn tippari var með þrettán rétta á Enska getraunaseðlinum í gær. Hann hafði tippað fyrir 5.684 krónur og skiluðu þær rétt um 15,5 milljónum króna í vasa tipparans.

Samkvæmt tilkynningu frá Íslenskum getraunum var miðinn keyptur á föstudaginn og tipparinn glúrni styður Víking Reykjavík.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×