Fótbolti

Tippari græddi 5,3 milljónir á sigri Þýskalands

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Vísir/Getty
Þótt margir hafi talið að Þýskaland ætti góða möguleika gegn Brasilíu voru eflaust fæstir sem áttu von á því að Þýskaland myndi vinna 7-1.

Veðmálasíður erlendis bjóða upp á að fólk geti veðjað á hvaða úrslit sem er og voru alls átta manns sem veðjuðu á að Þýskaland myndi vinna leikinn 7-1. Þar á meðal einn sem veðjaði á að Sami Khedira myndi skora eitt mark í 7-1 sigri.

Lagði sá hinn sami 20 dollara undir eða rúmlega 2000 íslenskar krónur og fékk að launum tæplega 5,3 milljónir íslenskra króna.

Mynd af veðmálaseðli sigurvegarans má sjá hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×