Sport

Tippar alltaf eins og vann loksins eftir 7 ára bið

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Það er spurning hvort að Íslendingurinn hafi tippað á sigur Manchester United í gær.
Það er spurning hvort að Íslendingurinn hafi tippað á sigur Manchester United í gær. Vísir/Getty
Einn íslendingur var með 13 rétta á enska getraunaseðlinum í gær og fær rúmar fjórar milljónir króna í sinn hlut.

Um er að ræða stuðningsmann Hattar á Egilsstöðum sem hefur tekið þátt í getraunastarfinu þar í fjölda ára. Stuðningsmaðurinn er með liðið Bogason og tekur þátt í Meistaradeild Hattar.

Maðurinn hefur tippað í hverri viku í 7 ár og alltaf tippað eins. Það má því að segja að þolinmæði hans hafi skilað sér því hann uppsker nú stóran vinning.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×