Leikjavísir

Tiny knight besti leikurinn á Game Creator 2015

Samúel Karl Ólason skrifar
Á myndinni er vinningsliðið Demon Lab og Sigríður Olgeirsdóttir frá Íslandsbanka.
Á myndinni er vinningsliðið Demon Lab og Sigríður Olgeirsdóttir frá Íslandsbanka.
Liðið Demon Lab hlaut fyrstu verðlaun Game Creator 2015 fyrir leikin Tiny Knight. Þetta var í fjórða sinn sem keppnin um besta tölvuleikinn fór fram á Háskóladeginum í Háskólanum í Reykjavík. Að þessu sinni kepptu tíu lið um besta tölvuleikinn, en keppnin er haldin á vegum Samtaka leikjaframleiðanda, IGI, sem eru starfsgreinahópur innan Samtaka Iðnaðarins, Háskólans í Reykjavík og Margmiðlunarskólans.

Árið 2011 sigraði lið Lumenox, sem gaf út leikinn Aaru‘s Awakening á dögunum. Í dag starfa átta manns í höfuðstöðvum Lumenox hér á landi.



Í liðinu Demon Lab eru þeir Hrafn Orri Hrafnkelsson, Valdimar Jónsson og Egill Ernir Sigurjónsson. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samtökum Iðnaðarins.

Tiny Knight er fyrstu persónu leikur þar sem spilarinn þarf að komast í gegnum hinar ýmsu hindranir á sem stystum tíma. 3D leikur með skemmtilegu erfiðleikastigi. Í umsögn dómnefndar segir meðal annars: „Vel gerður og unninn leikur. Liðið var með skýra sýn sem er nauðsynleg til að fara með leikinn á næsta stig. Leikurinn hefur möguleika til að skera sig úr og slá í gegn.“

„Áhugi á leikjagerð hefur farið vaxandi að undarförnu og ný fyrirtæki eru að spretta upp. Við erum klárlega á réttri leið með að byggja hér upp líflegan nýjan iðnað,“ sagði Ólafur Andri Ragnarsson, formaður Samtaka leikjaframleiðanda, sem stýrði verðlaunaafhendingunni. Hann sagði þátttöku í keppninni framar vonum, sem og gæðin á bestu leikjunum.

Í verðlaun voru meðal annars 140 þúsund króna styrkur frá Íslandsbanka. Sigurliðið fékk einnig frítt aðgengi að IGI, Samtökum leikjaframleiðenda í 2 ár. Skrifstofurými og leiðsögn í þrjá mánuði hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Námskeið fyrir tvo að eigin vali hjá Margmiðlunarskólanum, 12 mánaða áskrift 3 Unity Pro og gagnavistun hjá Basis í 12 mánuði. Einnig fékk sigurliðið frían aðgang að Eve Online Fanfesti frá CCP.

„Að fá þennan stuðning mun gera okkur kleift að klára leikinn sem er markmiðið okkar á næstu misserum,“ segja þeir Hrafn Orri, Valdimar og Egill í Demon Lab í tilkynningunni.

Making Play fengu einnig viðurkenningu fyrir listræna tilburði í leik sínum Video Games Are Hard. Þá fengu Cosmosis viðurkenningu fyrir fumleika í leik sínum Nega Blast og Daz Team fékk viðurkenningu fyrir áhugaverðasta leikinn, Polymorph.

Dómnefnd skipuðu þau Marina Dögg Pledel Jónsdóttir, Berglind Fanndal Káradóttir, Marco Bacnale, Stephan Schiffel og Pétur Örn Þórarinsson.

Tilgangur Game Creator er að efla nýsköpun í íslenskri leikjaframleiðslu og gefa nýju fólki og liðum tækifæri á að koma fram og kynna hugmyndir sínar og leikjahönnun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×