Viðskipti erlent

Tinder og Instagram í eina sæng

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Tinder og Instagram hafa nú leitt saman hesta sína til þess að gera notendum auðveldara með að tengjast og hefja samtöl.
Tinder og Instagram hafa nú leitt saman hesta sína til þess að gera notendum auðveldara með að tengjast og hefja samtöl. Mynd/Tinder/Instagram
Tinder og Instagram hafa leitt saman hesta sína en nýjasta uppfærsla stefnumótaappsins leyfir nú notendum að vísa beint á Instagram síðu sína. Þegar það er gert birtast þrjátíu og fjórar nýjustu myndir notandans. Er þetta gert til þess að auka líkur á því að notendur í leit að ást velji að „swipe-a“ til hægri en það merkir að þér líki við manneskjuna og hafir ef til vill áhuga á frekara spjalli. Ef þú hefur ekki áhuga velurðu að „swipe-a“ til vinstri eða draga myndina til vinstri. Allt þetta er vel útskýrt í kynningarmyndbandi frá Tinder sem sjá má hér að neðan.

Myndbandið er gert af Magna Carta, framleiðslufyrirtæki sem hefur séð um að gera mikið af auglýsingum fyrir Tinder. „Við vildum skoða þetta fyrirkomulag þar sem Instagram er notað eins og félagsleg dagbók, skrifuð af notandanum, fjölskyldu hans eða hennar og af vinum,“ sagði Maximilian Guen , stofnandi Magna Carta. „Með því að nota myndavélina eins og karakter gátum við myndað ákveðna nánd. Ég vildi að áhorfendur væru þarna með stelpunni okkar, til að kynnast henni og falla fyrir henni.“

Samkvæmt Tech Times er markmið uppfærslunnar að auki að minnka grunnhyggnina sem smáforritið hefur verið gagnrýnt fyrir þar sem notendur geta nú myndað sér skoðun á öðrum notendum sem byggist á öðru heldur en útlitinu einungis. „Þessi breyting mun gefa notendum betri skilning á því hvernig manneskjan er sem þú ert að tala við,“ sagði annar stofnenda Tinder og forstjóri Sean Rad. „Þetta er bara fyrsta skrefið af mörgum til þess að taka forritið á næsta stig og hjálpa þér, notandanum, að meta manneskjuna sem þú tengist við og hjálpa notendum að hefja samtal. Ef við getum gefið notendum okkar viðeigandi upplýsingar fyrir hvern notanda getum við tekið þá hálfa leið að því að hefja samtal.“


Tengdar fréttir

Nýjasta stjarna Íslands kynntist kærastanum á Tinder

Alda Dís Arnardóttir er tuttugu og tveggja ára ung kona sem ákvað að elta drauminn um að syngja. Hún hefur svo sannarlega heillað þjóðina með söng sínum sem kaus hana sem sigurvegara nýverið í Ísland Got Talent. Hér deilir hún með lesendum hversu mikilvæg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×