Skoðun

Tími þöggunar er liðinn

Steinunn Ýr Einarsdóttir skrifar
Kynferðisofbeldi er raunveruleg ógn við jafnrétti kynjanna. Vandinn er víðtækur og snertir allt samfélagið. Til þess að ná raunverulegum árangri þarf samhellt forvarnar- og fræðsluátak ásamt því að auka þjónustu við brotaþola og gera nauðsynlegar kerfisbreytingar.

Vitundarvakning hefur orðið um kynferðisofbeldi með Beauty tips byltingunni, frelsun geirvörtunnar og Druslugöngunni en slíkt ofbeldi er allt of algengt í okkar samfélagi. Vandinn mun ekki hverfa með því að líta undan og tími þöggunar er liðinn.

Fækkum þolendum til að fækka gerendum

Koma þarf á langtíma forvörnum og fræðsluátaki gegn kynferðisofbeldi sem miða að því að fækka gerendum til þess að fækka þolendum. Afleiðingar kynferðisofbeldis hefur áhrif á allt samfélagið. Samkvæmt tölum hefur fjórðungur kvenna á Íslandi verið beittur kynferðisofbeldi af hálfu karlmanns.

Sama þjónustan fyrir alla

Allir brotaþolar eiga að geta sótt gjaldfrjálsa sálfræðiþjónustu, óháð aðstæðum, búsetu eða efnahag, ásamt því að styrkja félagasamtök sem beita sér gegn kynferðisofbeldi og ofbeldi í nánum samböndum. Samræma þarf verklag milli lögregluumdæma til þess að tryggja að allir þolendur mæti sama verklagi hvar sem þeir tilkynna um brot og sérmenntun lögreglumanna og efling kynferðisbrotadeildar á landsvísu er nauðsynleg. Það á ekki að skipta máli hver er á vakt, allir lögregluþjónar eiga að vera vel að sér í meðferð kynferðisbrota og verklagið vera skýrt svo jafnvel óreyndur lögregluþjónn geti gengið inn í fyrirframgefið verklag.

Víðtækar aðgerðir

Til þess að geta farið í víðtækar aðgerðir gegn kynferðisofbeldi þarf fyrst og fremst að greina vandann ítarlega og efla rannsóknir. Styrkja þarf Jafnréttisstofu til að hún geti sinnt sínu lögbundna hlutverki sem er að hafa eftirlit með að jafnréttislögum og sinna rannsóknar og fræðslustarfi. Aðgerðaráætlun gegn kynferðisofbeldi á að gera á fjögurra ári fresti en því hefur ekki verið sinnt hjá núverandi stjórnvöldum. Slík aðgerðaráætlun ætti að byggja á ígrunduðum rannsóknum og hafa skýr markmið svo hægt sé að mæla árangur.

Uppræta ofbeldi

Að uppræta ofbeldi í samfélaginu er baráttumál sem þjóðin ætti að sameinast um og mun gagnast öllum, þolendum, aðstandendum, kerfinu og óháðum ef þeir eru einhverjir. Samfylkingin vill að það verði forgangsverkefni næstu ríkisstjórnar að gera allsherjar aðgerðaráætlun til að koma í veg fyrir kynferðisofbeldi og ofbeldi í nánum samböndum. Sú aðgerðaráætlun sem við höfum lagt til leggur áherslu á forvarnir og fræðslu, að bæta þjónustu fyrir brotaþola um allt land, að gerðar verði kerfisbreytingar fyrir þolendur og betri greiningar á umfangi vandans.

Höfundur er Steinunn Ýr Einarsdóttir frambjóðandi Samfylkingarinnar í fjórða sæti Reykjavíkurkjördæmis norður. 




Skoðun

Skoðun

Bestu árin

Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Sigríður Gísladóttir skrifar

Sjá meira


×