Erlent

Tímasetningarnar sem þú þarft að hafa á hreinu fyrir nóttina

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Myndin er samsett.
Myndin er samsett. Vísir/Getty

Bandaríkjamenn ganga til kosninga í dag til kjósa 45. forseta Bandaríkjanna. Kosið er í 50 ríkjum auk höfuðborgarinnar Washington. Bandaríkin ná yfir sex mismunandi tímabelti og því ekki létt verk að ná utan um hvenær úrslit liggja fyrir. Fimm tíma munur er á austurströnd Bandaríkjanna og Íslandi, sem er á undan.

Fyrstu kjörstaðir voru opnaðir víðast hvar klukkan ellefu í morgun á austurströnd Bandaríkjanna en kjörstaðir loka á bilinu 00.00 og 01.00 í nótt, á íslenskum tíma. Þá má gera ráð fyrir fyrstu tölum en lokatölur birtast yfirleitt í kringum 23 að bandarískum tíma, um klukkan fjögur í nótt að íslenskum tíma.

Fyrstu tölur birtast hins vegar yfirleitt fljótlega eftir að kjörstöðum er lokað og hér að neðan má finna handhæga tímalínu þar sem farið er yfir klukkan hvað má gera ráð fyrir að eitthvað sé að frétta.

Clinton vonast til að feta í fótspor Obama.Vísir/Getty

19.00 að bandarískum tíma - Miðnætti að íslenskum tíma

Kjörstöðum á austurströnd Bandaríkjanna er lokað. Augu flestra munu beinast að Virginíu þar sem þrettán kjörmenn eru undir en reikna má með fyrstu tölum úr ríkinu um þetta leyti. Ríkið er svokallað sveifluríki (e. Swingstate) og sigraði Barack Obama þar í síðustu tveimur kosningum en þar á undan var það lykilríki repúblikana.

Sigri Donald Trump gæti nóttin orðið erfið fyrir Hillary Clinton en flestar spár gera þó ráð fyrir að Clinton muni bera sigur úr bítum hér.

Einnig má gera ráð fyrir að fyrstu tölur birtist í Georgíu (16 kjörmenn), Indíana (11 kjörmenn), Kentucky (8 kjörmenn), Suður-Karólínu (9 kjörmenn) og Vermont (3 kjörmenn) en öll þessi ríki, að undanskildu því síðastnefnda, eru talin örugg Trump-ríki.

Trump er með þessar tímasetningar á hreinu.Vísir/Getty

19.30 að bandarískum tíma - 00.30 að íslenskum tíma

Kjörstöðum lokað í Norður-Karólínu og Ohio og búast má við fyrstu tölum um þetta leyti. Norður-Karólína og Ohio eru gríðarlega mikil sveifluríki en sigurvegari Ohio hefur verið kjörinn forseti í öll skipti fyrir utan eitt frá lokum seinni heimsstyrjaldar.

Í Norður-Karólínu eru 15 kjörmenn í boði og 18 í Ohio. Kannanir sýna að mjótt er á munum á milli frambjóðendanna í þessum ríkjum. Reiknað er með að Trump taki Ohio en Clinton næli í Norður-Karólínu.

Einnig má búast við að fyrstu tölur úr Vestur-Virginíu verði birtar. Þar eru fimm kjörmenn í boði.

20.00 að bandarískum tíma - 01.00 að íslenskum tíma

Nú hefst fjörið. Minnst átta ríki á austurströndinni munu birta fyrstu tölur. Þá má gera ráð fyrir að lykilríki á borð við Flórída og Pennsylvaníu birti fyrstu tölur. Flórída er algjört lykilríki í áætlunum Trump um að ná í þá 270 kjörmenn sem þarf til. Takist honum ekki að sigra í þessu ríki má gera ráð fyrir að sigurvonir hans séu úti.

Pennsylvanía er einnig mikilvæg, bæði fyrir Clinton og Trump. Ríkið er hluti af svokölluðum eldvegg Clinton en Trump þyrfti helst að sigra þar til að eiga möguleika á forsetaembættinu.

New Hampshire, einnig hluti af eldvegg Clinton, ætti að koma inn á þessum tíma auk nokkurra lykilríkja Trump í suðurríkjunum auk Illinois sem gert er ráð fyrir að muni hallast að Clinton

Ríki sem birta fyrstu tölur (kjörmenn í sviga): Maine (4) , Maryland (10), Massachusetts (11), New Jersey (14), Rhode Island (4), Delaware (3), Connecticut (7), District of Columbia (3) Florída (29) Pennsylvanía (20) New Hampshire (4) Mississippi (6), Missouri (10), Alabama (9), Tennessee (11), Oklahoma (7) og Illinois (20).

Um þetta leyti má gera ráð fyrir að komin sé mynd á niðurstöður kosninganna þó auðvitað sé mikið eftir.

20.30 að bandarískum tíma - 01.30 að íslenskum tíma

Kjörstöðum í Arkansas þar sem Clinton var eitt sinn ríkisstjórafrú er lokað. Þar eru 6 kjörmenn í boði en ríkið hefur stutt frambjóðanda repúblikana frá kosningunum 2000.

21.00 að bandarískum tíma - 02.00 að íslenskum tíma

Þungavigtarríki á borð við New York og Texas ættu að birta fyrstu tölur. Í New York eru 29 kjörmenn í boði, í Texas eru 38. Fastlega er gert ráð fyrir að New York styðji Clinton en Texas hallist að Trump.

Tvö sveifluríki, Colorado og Michigan, ættu að koma með fyrstu tölur. Spár gera ráð fyrir að Colorado kjósi Clinton en Michigan hallist að Trump.

Kansas (6), Louisiana (8), Norður-Dakota (3), Suður-Dakota (3), Minnesota (10), Wyoming (3), Nebraska (5) Wisconsin (10) og Nýja Mexíkó (5) birta einnig fyrstu tölur.

Bandaríkjamenn kjósa nú í gríð og erg.Vísir/Getty

22.00 að bandarískum tíma - 03:00 að íslenskum tíma

Nevada, Utah, Iowa og Montana ættu að koma með fyrstu tölur. Iowa er lykilríki í augum Trump en þar vann Obama sigur í síðustu tveimur kosningum. Nevada og Arizona, sem sögulega séð hafa kosið Repúblikana undanfarna áratugi, gætu fallið Clinton í skaut vegna góðrar kjörsóknar spænskættaðra Bandaríkjamanna.

23.00 að bandarískum tíma - 04.00 að íslenskum tíma

Ríkið með flesta kjörmenn, Kalifornía með sína 55, ætti að birta sínar fyrstu tölur ásamt Oregon, Washington, Idaho og Hawai. Fastlega má gera ráð fyrir að á þessum tímapunkti muni niðurstöður kosninganna liggja fyrir og ljóst sé orðið hvort Trump eða Clinton verði næsti forseti Bandaríkjanna.

Fljótlega eftir ætti sá sem tapar að halda ræðu þar sem viðkomandi viðurkennir ósigur og í kjölfarið ætti sigurvegarinn að halda sigurræðu sína. Alaska rekur svo lestina en tölur þaðan ættu að berast klukkan 06.00 að íslenskum tíma.

20. janúar 2017

Sigurvegari kosninganna tekur við sem 45. forseti Bandaríkjanna.


Tengdar fréttir

Heimsbyggðin bíður úrslitanna í ofvæni

Hillary Clinton hefur enn nokkurt forskot á Donald Trump samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum, en það er ekki mikið. Óvissa ríkir um hve mikil áhrif síðasta útspil FBI hefur á úrslitin. Hvernig sem fer þá markar dagurinn tímamót.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×