Tímalaus stemning

Gagnrýni
Fréttablaðið Gagnrýni 16. desember 2011 11:00
Söngurinn var tær og í fullkomnu jafnvægi.
Söngurinn var tær og í fullkomnu jafnvægi.
Jónas Sen skrifar:
Tónlist. Jólatónleikar Ríkisútvarpsins. Kammerhópurinn Carmina undir stjórn Árna Heimis Ingólfssonar. Kristskirkja

Það var gaman í Kristskirkju á mánudagskvöldið. Þar voru jólatónleikar Ríkisútvarpsins haldnir. Á efnisskránni voru trúarleg lög úr íslenskum sönghandritum frá 15., 16. og 17. öld. Kammerhópurinn Carmina, undir stjórn Árna Heimis Ingólfssonar, söng en einnig lék Karl Nyhlin á bassalútu. Ég hef sjaldan heyrt jafn sjarmerandi tónlistarflutning.

Söngurinn var tær og í fullkomnu jafnvægi. Túlkunin var þrungin tilfinningu, kraftmikill kórsöngurinn kom einstaklega vel út í endurómun kirkjunnar. Hver tónn var mótaður af fagmennsku og smekkvísi.

Nokkrir kórmeðlimir sungu einsöng, oftast við lútuleik. Það var afar fallegt. Lútan skapaði tímalausa stemningu og lög með einum eða tveimur söngvurum voru skemmtileg tilbreyting frá kórsöngnum. Eitt magnaðasta lagið var úr stærsta íslenska tónlistarhandritinu frá 17. öld. Handritið heitir Melódía, en lagið var „Eilíft lof með elsku hátt" og var sungið af Kirstínu Ernu Blöndal.

Í Melódíu eru mörg hundruð lög, sum þeirra þjóðlög en önnur hafa jafnframt fundist í handritum í Evrópu. Lögin eru skemmtilega ólík, allt frá gregórskum messusöng til lagsins Vera mátt góður, sem margir kannast sjálfsagt við frá því Þursaflokkurinn söng það fyrir tæpum þrjátíu árum.

Á tónleikunum voru einnig útsetningar núlifandi tónskálda á fornum lögum. Þetta voru þau Hildigunnur Rúnarsdóttir, Anna Þorvaldsdóttir og Hugi Guðmundsson. Útsetningarnar voru allar prýðilegar og engin þeirra virtist langt frá upprunalegri mynd laganna. Samt voru verkin skemmtilega ólík. Það var falleg einlægni í útsetningum Hildigunnar, þjóðleg heiðríkja í þeirri sem Hugi gerði og hrífandi dulúð í verki Önnu, ef svo má að orði komast.

Dagskránni lauk með hinu sígilda jólalagi Sigvalda Kaldalóns, Nóttin var sú ágæt ein. Flutningurinn var hástemmdur og magnaður. Það var fullkominn endir á frábærum tónleikum.

Niðurstaða: Glæsilegir tónleikar með dásamlegri tónlist.

Fleiri fréttir - Gagnrýni

Gagnrýni 25. maí. 2012 12:00

Alltumlykjandi og áhrifarík

Sigur Rós tekur stóra beygju með rólegri og hrífandi plötu. Á heildina litið er Valtari fí...  

Meira
Gagnrýni 24. maí. 2012 22:00

Barsmíðar og bollukinnar

Aðdáendur órakaða ólátabelgsins Jason Statham verða himinlifandi, en realistar ættu að hal...  

Meira
Gagnrýni 24. maí. 2012 10:30

Súrrealísk sumargjöf

Stórfín frumraun Tilbury, stappfull af grípandi popplögum og forvitnilegum textum. Tónlist...  

Meira
Gagnrýni 23. maí. 2012 20:00

Innan þægindarammans

Dark Shadows er nokkuð góð skemmtun sem skrifast að stórum hluta á Johnny Depp. Leikstjóri...  

Meira
Gagnrýni 23. maí. 2012 10:00

Gengu af göflunum

Algerlega frábærir tónleikar. Ég get ekki ímyndað mér að nokkur hafi orðið fyrir vonbrigðu...  

Meira
Gagnrýni 21. maí. 2012 10:00

Starað í poppið

Hvað fór úrskeiðis hjá þessum hæfileikaríka grínara? Borat var ósmekkleg frá upphafi til e...  

Meira
Gagnrýni 16. maí. 2012 11:00

Norah prófar eitthvað nýtt

Þokkalegasta plata sem aðdáendur Noruh Jones ættu að vera sáttir við. Danger Mouse býr til...  

Meira
Gagnrýni 11. maí. 2012 15:00

Út um þúfur

Aðdáendur Mel Gibson eiga betra skilið. Það er orðið svo skrambi erfitt að halda upp á han...  

Meira
Gagnrýni 10. maí. 2012 14:30

Endurvinnslukóngurinn

Jack White með eina af plötum ársins. Blunderbuss er lítið meistaraverk; þrettán lög, hver...  

Meira
Gagnrýni 09. maí. 2012 12:30

Barist í blokk

Það er ekki á hverjum degi sem indónesískar hasarmyndir rata í íslensk kvikmyndahús. En ek...  

Meira
Gagnrýni 08. maí. 2012 11:00

Fersk og óvænt plata

Nýjasta hljómsveitin hans Krumma með frábæra plötu. Hún kemur fersk inn í íslenska tónlist...  

Meira
Gagnrýni 03. maí. 2012 11:00

Bubbi í toppformi

Þorpið er, ef mér skjátlast ekki, 26. plata Bubba með nýju efni. Það eru ótrúleg afköst. O...  

Meira
Gagnrýni 02. maí. 2012 11:15

Leikræn og lipur fengitíð

Svar við bréfi Helgu er góð sýning með skýrri persónusköpun. Leikgerðin er mjög spennandi....  

Meira
Gagnrýni 01. maí. 2012 15:00

Árshátíð ofurhetja

The Avengers er alvöru árshátíð. Mikið hlegið og allir í sínu fínasta pússi. Hulk var þó v...  

Meira
Gagnrýni 20. apr. 2012 13:00

Skálkar á skólabekk

Mátulegur skammtur af formúluskopi. Allt gott og blessað. Þessi ágæti grínhasar krefst eng...  

Meira
Gagnrýni 18. apr. 2012 21:00

Rokkaður gospelblús

Blússveit Þóllýjar er skipuð söngkonunni Þollý Rósmunds, gítarleikaranum Magnúsi Axel Hans...  

Meira
Gagnrýni 18. apr. 2012 15:00

Rokk og ról

Fyndin og fjörug brelluveisla. Og hávaðinn er ægilegur. Battleship veit hvað hún vill vera...  

Meira
Gagnrýni 13. apr. 2012 20:00

Fram og aftur morðgátuna

Vel byggður og spennandi krimmi með ótrúlegu fléttumunstri og vel skrifuðum persónum. Nesb...  

Meira
Gagnrýni 13. apr. 2012 12:30

Vessa- og vandræðahúmor

Fortíðardaðrið er töluvert og aðdáendur myndanna geta eflaust skemmt sér sæmilega yfir Ame...  

Meira
Gagnrýni 12. apr. 2012 14:00

Vel útfært og kraftmikið

Muck stimplar sig inn með pottþéttri rokkplötu, lagasmíðarnar eru fínar, flutningur þéttur...  

Meira
Gagnrýni 11. apr. 2012 20:00

Farsaskrímslið snýr aftur

Tveir 11 ára piltar lumbra hvor á öðrum og tennur hljóta skaða af. Foreldrar drengjanna hi...  

Meira
Gagnrýni 11. apr. 2012 09:00

Hress skilnaðarplata frá drottningu poppsins

MDNA er tólfta plata Madonnu og sú fyrsta síðan Hard Candy kom út fyrir fjórum árum. Þetta...  

Meira
Gagnrýni 11. apr. 2012 08:00

Perlan skín enn

Það er gaman að fá þessa perlu aftur í bíó. Hún fjallar um atburði sem áttu sér stað í upp...  

Meira
Gagnrýni 10. apr. 2012 14:00

Falleg sýning um föðurleit

Saga Magneu, tengdamóður höfundarins Vals Freys Einarssonar og móður leikmynda- og búninga...  

Meira
Gagnrýni 10. apr. 2012 10:00

Tilkomumikil hávaðamessa

AMFJ er listamannsnafn Aðalsteins Jörundssonar. Hann hefur vakið athygli undanfarin ár fyr...  

Meira
Gagnrýni 02. apr. 2012 17:00

Björk hittir Áhöfnina á Halastjörnunni

Karl Olgeirs, Jón Rafns og Kristinn Snær djassa upp íslensk popplög úr ólíkum áttum. Eins ...  

Meira
Gagnrýni 29. mar. 2012 14:30

Þetta er ungt og leikur sér

Þessi risastóra mynd er byggð á vinsælli skáldsögu eftir Suzanne Collins og gerist í ótilg...  

Meira
Tarot
Hugsaðu þér, eða skrifaðu spurningu og dragðu þér spádómsspil
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Lífið - Yfir / Gagnrýni / Tímalaus stemning