Lífið

Tímahylki í Túnunum á 90 milljónir

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hús á einum besta stað í Reykjavík.
Hús á einum besta stað í Reykjavík.
Fasteignasalan Torg er með einbýlishús í Samtúninu á söluskrá en húsið er 270 fermetrar að stærð. Húsið var byggt árið 1946 og eru alls átta svefnherbergi í eigninni.

Fasteignamatið er 83,9 milljónir og brunabótamatið 58 milljónir. 

Um er að ræða reisulegt og fallegt hús með upprunalegum innréttingum. Það er því í raun eins og ganga aftur til fortíðar að skoða myndir innan úr eigninni.

Hér að neðan má sjá myndir úr eigninni:

Húsið stendur nálægt turninum í Borgartúni
Eldhúsið er upprunalegt.
Víðsvegar teppalagt í húsinu.
Falleg lesstofa.
Björt og skemmtileg stofa.
Skemmtileg hurð í húsinu.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×