Fótbolti

Tímabilið undir hjá Man. Utd á móti kornungu Ajax-liði í kvöld

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Paul Pogba fagnar marki í Evrópudeildinni í vetur.
Paul Pogba fagnar marki í Evrópudeildinni í vetur. Vísir/Getty
Tímabilið er undir hjá Manchester United í úrslitaleik Evrópudeildarinnar í kvöld. José Mourinho, knattspyrnustjóri United, setti öll eggin sín í Evrópudeildarkörfuna og treystir á að liðið komist inn í Meistaradeild Evrópu með því að vinna Evrópudeildina. United gaf ensku úrvalsdeildina nánast upp á bátinn þegar nokkrar umferðir voru eftir og sigur í Evrópudeildinni var forgangsatriði hjá Mourinho.

Að lenda í 6. sæti ensku úrvalsdeildarinnar eru mikil vonbrigði fyrir United en liðið var aldrei í titilbaráttu í vetur. Sigur í Evrópudeildinni, og þ.a.l. sæti í Meistaradeildinni, myndi þó gera þetta fyrsta tímabil Mourinhos við stjórnvölinn á Old Trafford viðunandi.

Evrópudeildin er eina Evrópukeppnin sem United á eftir að vinna. Liðið hefur unnið Meistaradeildina í þrígang og vann hina sálugu Evrópukeppni bikarhafa einu sinni. Aðeins fjögur félög hafa unnið allar þrjár Evrópukeppnirnar: Juventus, Bayern München, Chelsea og Ajax, mótherjar United í kvöld.

Tuttugu og tvö ár eru síðan Ajax varð Evrópumeistari síðast. Hollenska liðið vann Meistaradeildina árið 1995 og var hársbreidd frá því að verja titilinn árið eftir. Á þeim tíma var Ajax-liðið skipað ungum og efnilegum leikmönnum á borð við Clarence Seedorf, Edgar Davids, Marc Overmars og Patrick Kluivert sem skoraði sigurmarkið í úrslitaleik Ajax og AC Millan fyrir 22 árum.

Sonur þess síðastnefnda, Justin Kluivert, fetaði í fótspor föður síns og hefur komið talsvert við sögu hjá Ajax í vetur. Hann er einn fjölmargra ungra og spennandi leikmanna í Ajax. Líkt og um miðjan 10. áratug síðustu aldar er liðið skipað ungum og efnilegum leikmönnum en meðalaldurinn í leikmannahópi Ajax er í kringum tvítugt. Til marks um það hversu ungt Ajax-liðið er, þá verður væntanlega bara einn leikmaður (Lasse Schöne) eldri en 25 ára í byrjunarliðinu í kvöld.

Varnarmenn United verða að hafa góðar gætur á Kasper Dolberg, 19 ára gömlum dönskum framherja, sem hefur skorað sex mörk í Evrópudeildinni í vetur. Annar 19 ára strákur, Marcus Rashford, leiðir framlínu United og hefur gert það undanfarnar vikur eftir að Zlatan Ibrahimovic sleit krossband í hné.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×