Enski boltinn

Tímabilið líklega búið hjá Sturridge

Daniel Sturridge.
Daniel Sturridge. vísir/getty
Stjóri Liverpool, Brendan Rodgers, segir að tímabilið sé líklega búið hjá framherja félagsins Daniel Sturridge.

Sturridge hefur ekki spilað síðan 8. apríl vegna meiðsla og er ekki orðinn nógu góður.

„Við verðum að sjá til hvort hann komi aftur fyrir lok tímabils eða bara á næsta undirbúningstímabili," sagði Rodgers.

Liverpool á eftir að spila fimm leiki á þessu tímabili og á enn möguleika á Meistaradeildarsæti.

Liðið er sjö stigum á eftir Man. Utd sem er í fjórða sæti deildarinnar.

Liverpool getur minnkað það forskot í fjögur stig er liðið mætir Hull City á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×