Tímabært að taka sönsum

Fréttablaðið Fastir pennar 26. janúar 2012 06:00
Ólafur Þ. Stephensen
Ólafur Þ. Stephensen
Hagfræðistofnun Háskóla Íslands hefur skilað skýrslu að beiðni ríkisstjórnarinnar þar sem fjallað er um ýmsar lífseigar tillögur og tilgátur um lánamál heimilanna. Tveimur hagfræðidoktorum var meðal annars falið að meta hvort það svigrúm sem bankarnir fengu til niðurfellingar lána vegna afsláttar af lánasöfnum væri fullnýtt, hver væri líklegur kostnaður vegna tillagna Hagsmunasamtaka heimilanna (og raunar margra fleiri) um flata niðurfærslu skulda og á hverjum kostnaðurinn af slíkri niðurfellingu myndi lenda.
Svörin koma ekki á óvart, enda hefur spurningunum öllum verið svarað áður. Tilgangur skýrslugerðarinnar var hins vegar að „eyða óvissu". Nú liggur málið býsna ljóst fyrir, samkvæmt skýrslu Hagfræðistofnunar.

Bankarnir hafa fullnýtt afsláttinn af húsnæðislánasöfnum, sem gefinn var þegar þau færðust úr gömlu bönkunum yfir í þá nýju. Kostnaðurinn við að færa húsnæðislán allra niður um 18,7% væri rúmlega 200 milljarðar króna. Hann myndi að langmestu leyti lenda á skattgreiðendum. Upphæðin samsvarar meira en þriðjungi af áætluðum útgjöldum ríkissjóðs árið 2012.

Hver maður ætti að geta séð að þessi leið er ekki fær, og jafnvel þótt til væru peningar væri lítið réttlæti fólgið í slíkri endurdreifingu áfallsins sem lántakendur urðu fyrir við hrun krónunnar. Enda benda skýrsluhöfundar á að sambærileg leið hefur hvergi verið farin.
Hagsmunasamtök heimilanna taka reyndar engum sönsum þótt þessi niðurstaða liggi fyrir og telja Hagfræðistofnun fara með tómar blekkingar. Þeir eru kolfastir í ranghugmyndum um að risavaxin millifærsla fjármuna frá almennum skattgreiðendum til skuldara sé einfalt mál og sanngjarnt. Samtökin og forystumenn þeirra hafa í raun endanlega stimplað sig út úr vitrænni umræðu um þessi mál.

Tímabært er að stjórnmálamenn, sem enn taka þátt í þeim ábyrgðarlausa leik að gefa fólki í skyn að meira kunni að verða gert fyrir skuldara og að niðurfærsla lána sé jafnvel enn inni í myndinni, hætti honum og sýni að þeir geti tekið mark á staðreyndum. Ef alltaf er látið í veðri vaka að nýjar lausnir séu á leiðinni, hafa fáir hvata til að taka í alvöru á sínum málum.

Þótt sársaukafullt kunni að vera að horfast í augu við það, verða þau úrræði sem stjórnvöld og lánastofnanir hafa nú þegar boðið illa stöddum skuldurum að duga til skemmri tíma litið. Einhverjum verður ekki bjargað frá húsnæðismissi og þar þarf velferðarkerfið að grípa inn í.

Til lengri tíma litið ættu þeir sem hafa áhyggjur af stökkbreyttum skuldum heimilanna að beita sér fyrir því að hér verði tekinn upp nothæfur gjaldmiðill, sem útheimtir hvorki verðtryggingu né að fólk freistist til að taka lán í erlendum gjaldmiðlum til að fjármagna þak yfir höfuðið. Slíkur gjaldmiðill kæmi í veg fyrir nýja kollsteypu á borð við þá sem skuldarar urðu fyrir barðinu á þegar krónan féll.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 26. maí. 2012 06:00

Bankablús

Viðbúið var að rekið yrði upp margraddað ramakvein þegar Landsbankinn tilkynnti um uppsagn...  

Meira
Fastir pennar 26. maí. 2012 06:00

Á Heimaey betur heima í ríkissjóði?

Ný Heimaey í eigu Ísfélagsins kom fyrir skömmu til heimahafnar í Vestmannaeyjum. Margir hr...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 12:53

Útlendingar og Íslendingar

Stjórnarfar í Kína er ömurlegt. Sérstaklega læt ég ógeðslega ritskoðunartilburði fara í ta...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 06:00

Raunhæfa planið

Þegar gjaldeyrishöft voru sett á í kjölfar hrunsins töldu flestir þau tímabundna ráðstöfun...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 06:00

Umsókn um málfrelsi

Fyrir seinustu alþingiskosningar bauð RÚV framboðunum að fá ókeypis kynningartíma í sjónva...  

Meira
Fastir pennar 24. maí. 2012 06:00

Hin "sterka vísindahyggja“

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði athyglisverða grein hér í blaðið í síðust...  

Meira
Fastir pennar 23. maí. 2012 06:00

Kostur á kjarabót

Undanfarin ár hafa Íslendingar sem hyggja á fasteignakaup getað farið inn á vefsíður Íbúða...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Atkvæðaveiðigjald

Ríkisstjórnin kynnti í síðustu viku með talsverðum lúðrablæstri svokallaða fjárfestingaáæt...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Velferðarráðherra og sérgreinalæknar?

Í umræðunni undanfarið hefur verið tíðrætt um gjöld vegna komu til sérfræðilækna og svokal...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 20:00

Er meyjarhaftið mýta?

Sæl, Sigga Dögg. Ég las greinina þína um mýtuna um þröngu píkuna og var mjög hrifin. Mig l...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Hinn ómissandi óþarfi

Listahátíðin í Reykjavík var alltaf stórviðburður í lífi föður míns....  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Langtímaatvinnuleysi gefinn gaumur

Eftir langt skeið þar sem atvinnuleysi var nánast óþekkt á Íslandi skall það á af þunga ve...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Goðsögnum hnekkt

Háskóli Íslands hefur kannað hvernig einkunnir nemenda skiptast eftir þeim framhaldsskólum...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Uppvakningur tekinn í fóstur

Sagt var að siðfræði margra þeirra sem áttu og stjórnuðu gömlu bönkunum fyrir hrun hefði r...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 11:03

Til varnar Suðurnesjum

Pabbi vann tvo vetur í Grindavík eftir að hann kláraði kennaranám, frá 1972 til 1974. Pabb...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 08:00

Lög lygum líkust

Í frumvarpi að lögum um fjölmiðla sem nú liggur fyrir þinginu er lagt til að útlendingar u...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 06:00

Ríkisbónus

Í desember 2009 var samið um uppgjör milli gamla og nýja Landsbankans. Í því fólst meðal a...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Óttinn við upplýsingar

Þórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, skrifaði grein hér í b...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Útlendingarnir ógurlegu

Allir hafa lent í einhverjum vandræðum með nágranna sína. Lengi var saga hvers lands líka ...  

Meira
Fastir pennar 16. maí. 2012 06:00

Brjótið lög!

Íslensk stjórnvöld hafa um langt skeið sett mikinn þrýsting á lífeyrissjóði landsins um að...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 08:00

Tímamót í mannréttindabaráttu

Það eru merkileg tímamót í réttindabaráttu samkynhneigðra þegar valdamesti maður heims, Ba...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 06:00

Dómur Landsdóms - fyrri hluti

Hinn 23. apríl sl. kvað Landsdómur upp dóm í máli fyrrverandi forsætisráðherra. Hann marka...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Það gefur á bátinn …

Það eru ekki margar stéttir sem njóta almennrar virðingar í samfélaginu....  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Skýrar línur

Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóðandi birtist landsmönnum í gamalkunnugum, pólitískum...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 03:13

Heimilisreksturinn

Ég og konan mín keyptum okkar fyrstu íbúð fyrr á þessu ári. Samhliða því fórum við yfir re...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Tímabært að taka sönsum