Golf

Tim Clark sigraði í Kanada eftir frábæran endasprett

Tim Clark fagnar sigrinum í gær.
Tim Clark fagnar sigrinum í gær. AP/Getty
Suður-Afríkumaðurinn Tim Clark sigraði á Opna kanadíska meistaramótinu með glæsibrag í gær en það gerði hann með því að fá fimm fugla á síðustu átta holunum í ausandi rigningu á Royal Montreal vellinum.

Bandaríkjamaðurinn Jim Furyk leiddi mótið með þremur höggum fyrir lokahringinn sem hann lék á 69 höggum eða einu höggi undir pari. Hann endaði því samtals á 16 höggum undir pari sem dugði ekki þar sem Clark lék lokahringinn á 65 höggum eða fimm undir en hann endaði mótið samtals á 17 höggum undir pari.

Sigur Clark er hans annar á PGA-mótaröðinni en áður hafði hann sigrað á Players meistaramótinu árið 2010. Jim Furyk hefur heldur ekki sigrað í móti á PGA-mótaröðinni síðan árið 2010 og hann þarf því að bíða aðeins lengur eftir næsta sigri.

Furyk getur þó huggað sig við það að hann er í frábæru formi þessa dagana en hann var einnig í toppbaráttunni á Opna breska meistaramótinu fyrir stuttu ásamt því að hafa halað inn rúmlega hálfum milljarði íslenskra króna í verðlaunafé á árinu sem þykir afar gott.

Næsta mót á PGA-mótaröðinni er eitt það stærsta á ári hverju en það er Bridgestone Invitational mótið sem er einnig hluti af heimsmótaröðinni í golfi. Þar munu allir bestu kylfingar heims taka þátt en Tiger Woods vann mótið í fyrra og á titil að verja.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×