Viðskipti erlent

Tilþrif Boeing 787-9 vekja athygli

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mynd/Skjáskot
787-9 vél Boeing vakti athygli gesta á flugsýningunni í Farnborough sem nú stendur yfir á samnefndum flugvelli á Englandi. Sýningin er ein sú stærsta þar sem flugvélaframleiðendur koma gripum sínum á framfæri.

787-9 vélin er stærri útgáfa af Dreamliner og er teflt fram í baráttunni við Airbus á Evrópumarkaði. Greinilegt er að í þeirri samkeppni dugar ekki að sýna hefðbundin flugtök og lendingar. Flugmennirnir stíga dans með vélinni til að fullvissa flugfélög um ágæti eigin vélar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×