Innlent

Tilskipun um gagnageymslu dæmd ólögmæt

Samúel Karl Ólason skrifar
Píratar skora á Alþingi að fella 42. grein laga um fjarskipti úr gildi tafarlaust.
Píratar skora á Alþingi að fella 42. grein laga um fjarskipti úr gildi tafarlaust. Vísir/GVA
Evrópudómstóllinn í Lúxemborg úrskurðaði í dag gagnageymdartilskipun Evrópusambandsins, um að fjarskiptagögn séu geymd í 6 til 24 mánuði, ólögmæta. Tilskipunin brýtur gegn meðalhófsreglunni. Fjallað var um málið á Vísi fyrr í dag.

Í tilkynningu frá Pírötum, segir að lagabreytingar muni eiga sér stað í ESB og þeim EES-aðildarríkjum sem tekið hafi upp tilskipunina. Þá annað hvort til þess að afnema hana eða bæta úr þeim annmörkum sem á henni eru.

Í þeim fjarskiptagögnum sem geymd eru í 6 til 24 mánuði sést hver hafði samban við hvern, hvenær og hversu lengi. Á það bæði við um símtöl og annarskonar fjarskipti, svo sem heimsóknir á vefsíður og tölvupóstsendingar.

„Gögnin geta nýst til að fylgjast með ferðum fólks, áhugamálum, og samskiptum við vini og vandamenn, en margar rannsóknir hafa sýnt fram á gagnsleysi þessara aðgerða í þágu löggæslu. Samkvæmt danskri tölfræði var meðal Dani skrásettur vegna gagnageymdar á c.a. 6 mínútna fresti, eða um 225 sinnum á dag,“ segir í tilkynningu Pírata.

Þá segir að efnislega hafi þessi tilskipun verið útfærð á Íslandi með 42. Grein laga um fjarskipti 81/2003, með breytingu árið 2005. Hún hafi aldrei verið formlega innleidd.

„Alþingi ætti að taka mark á þessum dómi og fella brott 42. gr. fjarskiptalaga tafarlaust.“

„Píratar vilja vekja máls á þessum úrskurði í ljósi þess hve gróflega þau vega að friðhelgi einkalífsins. Í grófum dráttum má segja að um forvirkar rannsóknarheimildir sé að ræða með öllum þeim siðferðislegu álitamálum sem slíkum heimildum fylgja.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×