Erlent

Tilraun til innbrots í gegnum skorstein fékk hörmulegan endi

Mynd/Lögreglan í Fresno

Óheppinn innbrotsþjófur lét lífið í gær í borginni Huron í Kalíforníu í Bandaríkjunum. Þjófurinn, sem var nítján ára gamall piltur, virðist hafa freistað þess að brjótast inn á heimili í borginni með því að látta sig síga niður skorsteininn.

Ekki fór betur en svo að hann festi sig þar rækilega. Daginn eftir komu íbúarnir heim og heimilisfaðirinn ákveður að kveikja upp í arninum. Hann áttaði sig ekki á því að innbrotsþjófurinn væri í reykháfnum fyrr en hann heyrði öskrin í honum og heimilið fylltist af reyk.

Húsbóndinn reyndi samstundis að slökkva eldinn en það var of seint og lést pilturinn af völdum reykeitrunar og brunasára.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×