Gott kvöld og velkomin í Kompás. Í kvöld skoðum við refsilöggjöf Norðmanna og Svía í kynferðisbrotamálum gegn börnum og berum saman við íslensku lögin. Við spyrjum; er íslenska refsilöggjöfin nægjanlega skýr þegar kemur að kynferðisbrotamálum gegn börnum? Væri hægt að vinna málin betur ef lögin væru skýrari? Við skoðum það.
Í apríl var Kompás í Kenýa að skoða ABC barnahjálpina þar í landi. Íslendingar tóku vel við sér og styrktu samtökin dyggilega. Þórunn Helgadóttir var í stuttu fríi frá fátæktinni í Nairóbí og segir okkur hvernig aðstæður breyttust.
Í lok þáttarins segjum við ykkur fallega sögu af mæðgum í Mongólíu sem fengu óvænta aðstoð frá Íslandi. En fyrst skoðum við refsilöggjöf Norðurlandanna í kynferðisbrotamálum gegn börnum.
Norsk og sænsk refsilöggjöf gengur lengra en sú íslenska í kynferðisbrotum gegn börnum. Ef frumvarp sem liggur fyrir sænska þinginu verður að lögum, þá verður það refsivert fyrir fullorðinn einstakling að eiga í kynferðislegum samskiptum við barn. Allsherjarnefnd alþingis er einhuga um það að skoða hvort skerpa eigi á íslensku lögunum.
Efni ţessarar síđu er alfariđ á ábyrgđ ritstjóra Kompás.