Lífið

Tilraun sjónvarpskonu til að fara í splitt misheppnaðist herfilega | Netið fór á hvolf

Stefán Árni Pálsson skrifar
Grínarar gera grín á netinu.
Grínarar gera grín á netinu. vísir
Það er alltaf best að maður sé hundrað prósent viss um að maður geti gert ákveðin partýtrikk áður en maður reynir þau.

Sérstaklega ef maður er í beinni sjónvarpsútsendingu en ítölsk sjónvarpsstjarna lenti heldur betur í vandræðalegri uppákomu í beinni á dögunum.

Hún var heldur kokhraust og ætlaði sér að fara í splitt í miðjum þætti, það fór ekki betur en svo að hún hamraði hausnum í gólfið og vankaðist.

Netverjar hafa farið hamförum á photoshop eftir atvikið eins og sjá má hér að neðan sem og myndband af atvikinu. 








Fleiri fréttir

Sjá meira


×