Lífið

Tilraun Orlando Bloom til að kýla Justin Bieber náðist á myndband

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Getty
Myndband hefur verið birt á Youtube af því þegar leikarinn Orlando Bloom reyndi að kýla tónlistarmanninn Justin Bieber á skemmtistað á Ibiza fyrir skömmu.

Fyrrverandi blaðakonan Anastasia Skolkova tók myndbandið og í viðtali við Mirror segir hún að Bloom hafi reynt að slá Bieber oftar en einu sinni.

 

Hún segir Bieber hafa sagt eitthvað þegar hann gekk inn sem hann beindi að Bloom, sem hafi þá stokkið upp á sófa til að reyna að ná til Bieber.

„Þetta var ótrúlegt. Allir stóðu upp og fylgdust með eins og þetta væri sýning og klöppuðu,“ segir Skolkova.

Eins og sagt var frá á Vísi í gær, eru orðrómar uppi um að fyrrverandi eiginkona Bloom, Miranda Kerr, hafi nýlega farið á stefnumót með Bieber. Þá hafa sögusagnir gengið manna á milli um að Bieber og Kerr hafi hist á meðan hún var gift Bloom.


Tengdar fréttir

Ýfingar á Ibiza: Bieber og Boom

Leikarinn Orlando Bloom reyndi að rétta unglingastjörnunni Justin Bieber einn á kjammann á Íbíza í gær.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×