Bíó og sjónvarp

Tilneyddur til að fella allt sitt fé

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þorbjörn Pétursson var fjárbóndi á Ósi í Arnarfirði.
Þorbjörn Pétursson var fjárbóndi á Ósi í Arnarfirði.
Svarta Gengið er heimildarmynd sem segir sanna og hráa sögu Þorbjörns Péturssonar fjárbónda og einsetumanns á Ósi í Arnarfirði.

Í kjölfar veikinda og slits þurfti hann að bregða búi og var tilneyddur til að fella allt sitt fé. Þar á meðal var hópur kinda sem Bjössi kallaði Svarta Gengið sem hann hafði alið sérstaklega og náð sterku tilfinningalegu sambandi við.

Ekki kom til greina að senda Svarta Gengið í sláturhús og í kjölfarið ákvað hann að heiðra minningu mállausra vina sinna með þeim hætti sem honum fannst við hæfi. Jafnframt sótti hann um leyfi yfirvalda að fá að hvíla þeim við hlið. Vísir frumsýnir í dag nýja stiklu úr myndinni sem verður frumsýnd á föstudaginn.

Það er Kári G. Schram sem leikstýrir myndinni og sá hann einnig um eftirvinnslu. Það er kvikmyndafyrirtækið Moment Films sem framleiðir hana.

Svarta Gengið - Last symphony for a sheep from Kari Schram on Vimeo.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×