Erlent

Tillerson til í beinar viðræður við Norður-Kóreu

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Rex Tillerson, utanríkisráðherra Bandaríkjanna.
Rex Tillerson, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Nordicphotos/AFP
„Auðvitað er það leiðin sem við myndum helst vilja fara,“ sagði Rex Tillerson, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er blaðamaður NPR spurði hann í gær hvort Bandaríkin vildu beinar viðræður við yfirvöld í Norður-Kóreu.

Yrði hlutverk þeirra viðræðna að létta á spennunni á Kóreuskaga sem hefur aukist undanfarið. Hafa yfirvöld í Norður-Kóreu til að mynda hótað því að varpa kjarnorkusprengjum á Bandaríkin.

„En Norður-Kóreumenn þurfa að ákveða hvort þeir séu tilbúnir að ræða við okkur,“ sagði Tillerson enn fremur.

Tillerson ávarpaði einnig öryggisráð Sameinuðu þjóðanna í gær. Sagði hann þar að hættan á því að norðurkóreski herinn gerði kjarnorkuárás væri raunveruleg. Þá kallaði hann eftir því að ríki heims einangruðu Norður-Kóreu með diplómatískum aðgerðum.

Bandaríkin myndu beita diplómatískum og efnahagslegum aðgerðum gegn einræðisríkinu. Meðal annars viðskiptaþvingunum gegn einstaklingum og fyrirtækjum sem stunduðu viðskipti við stjórnvöld þar í landi. Þá væri ekki hægt að útiloka hernaðaraðgerðir.

Wang Yi, utanríkisráðherra Kína, varaði hins vegar við hernaðaraðgerðum. „Beiting slíks valds myndi ekki leysa deiluna heldur leiða til frekari harmleiks,“ sagði Wang á fundinum.

Enn fremur sagði Wang að friðsamleg lausn á kjarnorkudeilunni, með samtali og samningum, væri eina skynsamlega lausnin. Kínverjar væru tilbúnir að beita sér gegn uppbyggingu norðurkóreska hersins ef Bandaríkin létu af hernaðaræfingum með Suður-Kóreu.

Slíkum tilboðum hafa Bandaríkjamenn hafnað áður þar sem þeir fara fram á að kjarnorkuvopnaáætlun Norður-Kóreu verði lögð til hliðar.

Kínverjar eru ekki einu nágrannar Norður-Kóreu sem eru andvígir hernaðaraðgerðum. Rússar, sem eiga landamæri að ríkinu, segja slíkt óásættanlegt. Aðstoðarutanríkisráðherrann Gennady Gatilov kallaði einnig eftir því í gær að Norður-Kóreumenn hættu öllum kjarnorku- og eldflaugatilraunum. Öfgafull orðræða hefði þó valdið alvarlegu ástandi á svæðinu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×