Lífið

Tilkynnti um mögulegan erfingja

Jay-Z og Beyoncé ýjuðu að því í lagatexta að annað barn væri á leiðinni.AFP/NordicPhotos
Jay-Z og Beyoncé ýjuðu að því í lagatexta að annað barn væri á leiðinni.AFP/NordicPhotos
Stjörnuparið Beyoncé og Jay-Z hafa verið mikið í umræðunni undanfarið vegna meintra hjónabandserfiðleika þeirra. Sjálf hafa þau neitað því að nokkuð ami að í hjónabandinu enda eru þau saman núna á tónleikaferðalaginu On the Run.

Sumir hafa látið að því liggja að meintir hjónabandserfiðleikar hjónanna séu búnir til af markaðsöflum til þess að reyna að selja fleiri miða á tónleikana. Þau Beyoncé og Jay-Z hafa líka verið dugleg við að kveða þessar sögusagnir niður með því að vera afar innileg í hvert skipti sem þau koma opinberlega fram.

Hjónin stigu á svið í París á föstudag og í laginu Beach Is Better breytti Jay-Z einni laglínunni í það sem myndi þýðast á íslensku sem: „Af því að hún er ólétt að öðru barni.“

Stóra spurningin er svo hvort að með þessu hafi Jay-Z verið að tilkynna að hjónin ættu von á öðru barni eða hvort hann hafi verið að stríða aðdáendum þeirra.

Fyrir eiga þau Blue Ivy sem er tveggja ára gömul síðan í janúar. Hjónin fóru heldur óhefðbundna leið þegar þau tilkynntu um komu hennar í heiminn.

Beyoncé nuddaði þá bumbuna eftir að hafa flutt lagið Love on Top á VMA-verðlaunahátíðinni árið 2011.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×