Viðskipti innlent

Tilkynnt um tilnefningar til Lúðurs

Tinni Sveinsson skrifar
Nokkrar af þeim herferðum sem tilnefndar eru á hátíðinni.
Nokkrar af þeim herferðum sem tilnefndar eru á hátíðinni.
Íslensku auglýsingaverðlaunin, eða Lúðurinn, verða afhent við hátíðlega athöfn þann 13.mars í Háskólabíó. Þetta er í tuttugasta og níunda sinn sem verðlaunin eru afhent.

Auglýsingastofan Brandenburg fékk flestar tilnefningar til verðlaunanna, eða tólf talsins. Næst kemur auglýsingastofan Jónsson & Le´macks með ellefu tilnefningar.

Tilnefningar skiptast svona á milli auglýsingastofa:

Brandenburg með 12 tilnefningar

Jónsson & Le’macks með 11 tilnefningar

Íslenska auglýsingastofan með 8 tilnefningar

Hvíta húsið, ENNEMM, Pipar\TBWA með 6 tilnefningar hver

Döðlur með 2 tilnefningar

E&Co með 2 tilnefningar

Playmo með 1 tilnefningu

H:N Markaðssamskipti með 1 tilnefningu

Lúðurinn er alls veittur í 12 flokkum til auglýsinga sem sköruðu fram úr á árinu 2014, fyrir frumlegar, snjallar, skapandi og vel útfærðar hugmyndir. Á bak við hátíðina standa ÍMARK og SÍA, Samband íslenskra auglýsingastofa.

Ásta Pétursdóttir, framkvæmdastjóri ÍMARK, segir í tilkynningu þetta alltaf skemmtilegan tíma á árinu og stóran viðburð hjá auglýsingafólki. Í ár var innsendingarferlinu í keppnina breytt og og það einfaldað til muna og einnig var gerð breyting á samsetningu fólks í dómnefnd. Tveir dómara eru úr stjórn ÍMARK og SíA tilnefndi svo sjö aðra dómara sem allir eru listrænir stjórnendur auglýsingastofanna. „Mikil spenna er í loftinu í kringum tilnefningarnar og svo Lúðurinn sjálfan í næstu viku. Þetta verður spennandi “ segir Ásta Pétursdóttir.

Sama dag, ÍMARK daginn, er ráðstefna í Háskólabíó sem ber yfirskriftina „Content Marketing“ eða efnismarkaðssetning. Þar munu koma fram fimm erlendir fyrirlesarar frá heimsþekktum fyrirtækjum og deila með gestum hvað efnismarkaðssetning er og sinni reynslu. Þetta eru fyrirtækin JetBlue, Einstök Ölgerð, Bibblio, Havas Worldwide og DRUM. Fundarstjóri verður Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka og jafnframt Markaðsmaður ársins 2014. Nánari upplýsingar og skráningu má finna á imark.is.



Tilnefningar til Lúðurs 2014:

1.Veggspjöld og skilti

Geysir skilti og Húfan Erna - Geysir - E&Co.

Hinsegin dagar - Reykjavik Pride - Hvíta Húsið

Krítarmjólk - Mjólkursamsalan - ENNEMM

Skál fyrir þér - Vífilfell - Víking Jónsson & Lemacks

Tívolí - Stuðmenn - Brandenburg

2.Umhverfisauglýsingar og viðburðir

Fegurðin kemur að innan - Bláa Lónið Skin Care - Döðlur

Hekla Aurora - Icelandair - Íslenska auglýsingastofa

Spreyttu þig á spýtunum: Hönnunarmars - Kjörís - Brandenburg

Varamannabekkir - Icelandair - Íslenska auglýsingastofa

Zombís grafreitur - Kjörís - Brandenburg

3. Bein markaðssetning

Bögglapóststofan - GAMMA - Jónsson & Lemacks

Hristu okkur saman! - PIPAR\TBWA - PIPAR\TBWA

4. Samfélagsmiðlar

Jökla Parka leikur - 66°NORÐUR - Jónsson & Lemacks

Malt og Appelsín: Velkominn - Ölgerðin - PIPAR\TBWA

Maraþonmennirnir - Íslandsbanki - ENNEMM

Nova Snapchat - NOVA - Brandenburg

Surprise Stopover - Icelandair - Íslenska auglýsingastofa

5. Almannaheillaauglýsingar

Af hverju er rusl í Reykjavík - Reykjavíkurborg - Hvíta Húsið

ALLIR LESA - Miðstöð íslenskra bókmennta / Reykjavík, Bókmenntaborg UNESCO - Jónsson & Lemacks

Erum við að leita að þér - Krabbameinsfélagið / Bleika slaufan - Brandenburg

Göngum til góðs - Rauði krossinn - Hvíta Húsið

Hraustir menn TV - Krabbameinsfélagið / Mottumars - Brandenburg

6. Vefauglýsingar

Apple fyrir alla! - Macland - Playmo

Ársskýrsla Landsvirkjunar - Landsvirkjun - Jónsson & Lemacks

LANDSBANKINN OG ICELAND AIRWAVES - Landsbankinn - Jónsson & Lemacks

Lífsreiknir TM - TM - Brandenburg

Pump Up the Jam - NOVA - Brandenburg

7. Útvarpsauglýsingar

Egils Grape – Blandan mín og blandan þín, blablabla og Sumar blöndur á ég skuldlaust! - Ölgerðin - PIPAR\TBWA

Egils Orka - Ölgerðin - Brandenburg

Ferming - Macland - Jónsson & Lemacks

Víkingalottó: Vinninginn heim - Íslensk getspá - ENNEMM

8. Mörkun – Ásýnd vörumerkis

Hverfisgata 12 - Hverfisgata 12 - Jónsson & Lemacks

Nýjar umbúðir-ný ásýnd - Kaffitár - Hvíta Húsið

Reykjavík Loves - Höfuðborgarstofa - Íslenska auglýsingastofa

Nýtt útlit SFS - Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi - Jónsson & Lemacks

Zombís - Kjörís - Brandenburg

9. Prentauglýsingar

Bergkamp - Réttur Jón á réttum stað... - Jónar Transport - Jónsson & Lemacks

Hátíðarauglýsingar - Landsbankinn - Jónsson & Lemacks

Leiktu þér með matinn - Kjörís - Brandenburg

Malt og Appelsín: Velkominn - Ölgerðin - PIPAR\TBWA

Skilríkjaherferð - Vínbúðin - ENNEMM

10. Kvikmyndaðar auglýsingar

Fegurðin kemur að innan - Bláa Lónið - Skin Care Döðlur

Grape: Náttulega biturt - Ölgerðin - PIPAR\TBWA

Lottó: leikurinn okkar - Íslensk getspá - ENNEMM

Styttu ferðalagið, lengdu faðmlagið. - Flugfélag Íslands - Íslenska auglýsingastofa

Velkomin heim um jólin - Icelandair - Íslenska auglýsingastofa

11. Herferð

Egils Grape: Náttúrulega biturt - Ölgerðin - PIPAR\TBWA

Gefðu þér góðan tíma // Icelandair gives you time - Icelandair - Íslenska auglýsingastofa

Portrett herferð 2014 - Geysir - E&Co.

Lottó: leikurinn okkar - Íslensk getspá - ENNEMM

Secrets - Íslandsstofa - Íslenska auglýsingastofa

12. ÁRA – Árangursríkasta Auglýsingaherferðin

Bankaþjónusta á nokkrum sekúndum - Arion banki - Hvíta Húsið

Hvað sem verður - TM - Brandenburg

Réttu þeim vinarhönd - Happdrætti SÍBS - H:N Markaðssamskipti

Vodafone RED - Vodafone - Hvíta Húsið






Fleiri fréttir

Sjá meira


×