Körfubolti

Tilfinningaríkur Pavel: Stoltur af því að þekkja þessa stráka

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Pavel Ermolinskij, leikstjórnandi KR, var hrærður í viðtali við Svala Björgvinsson eftir ótrúlegan sigur KR-inga á Njarðvíkingum í oddaleik liðanna í undanúrslitarimmu þeirra í úrslitakeppni Domino's-deildar karla í kvöld.

KR vann eftir tvöfalda framlengingu þrátt fyrir að hafa misst lykilmenn af velli með fimm villur - svo sem Pavel sjálfan og Helga Má Magnússon. En aðrir sem komu þá inn kláruðu leikinn fyrir heimamenn.

„Þetta er bara tilfinningalegt. Við misstum byrjunarliðið út af í villur en við erum með svo sterka karaktera á bak við.“

„Ég er bara svo stoltur. Ekki af því að við unnum heldur af strákunum sem gerðu það sem þeir gerðu í lokin. Ég er bara svo stoltur af því að þekkja þá og vera hluti af þessum hópi.“

„Það er frábært að vera kominn í úrslitin en það sem ég tek frá þessum leik er þetta.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×