Innlent

Tilfinningar voru ekki í boði

Erla Björg Gunnarsdóttir og Snærós Sindradóttir skrifa
Hildur byrjaði að skrifa um tilfinningar eftir að tilfinningaheimurinn opnaðist fyrir henni.
Hildur byrjaði að skrifa um tilfinningar eftir að tilfinningaheimurinn opnaðist fyrir henni. Vísir/Stefán
Forsetaframbjóðandinn Hildur Þórðardóttir hefur skrifað bækur um tilfinningar þar sem hún hvetur til þess að unnið sé úr tilfinningum jafnóðum.

 „Ég ólst upp við að tilfinningar væru ekki í boði. Ef ég var almennileg gat ég verið innan um fólk, en ef ég var með eitthvað vesen þá átti ég bara að vera annars staðar,“ segir hún í föstudagsviðtali Fréttablaðsins þar sem hún mætti Elísabetu Jökulsdóttur og Davíð Oddssyni.

„Þannig að þegar ég fór að læra um tilfinningar opnaðist þessi heimur sem ég fór svo að skrifa um.“

Elísabet talaði opinskátt um andlega heilsu sína í viðtalinu og hve mikilvæg geðlyf eru í hennar lífi. Hildur var þá spurð um efasemdir hennar um gagnsemi læknavísinda og lyfjanotkun, sem komið hafa fram í fjölmiðlum undanfarnar vikur. Hún segist ekki gagnrýna lyfjanotkun, heldur ofnotkun lyfja.

„Fjölmiðlamenn eru alltaf að draga þetta upp eins og þeir séu með eitthvað blæti fyrir þessari umræðu. Þetta er ekki það sem ég mun standa fyrir á forsetastóli. Ég vil bara að við sameinum austrænar og vestrænar lækningar, tökum það besta úr báðum. Lyf eru ekki alltaf rétti kosturinn,“ segir Hildur og bætir við að læknar haldi umræðunni niðri vegna þess að þeir græða á lyfjanotkuninni.

„Og það má ekki ræða þetta því einhverjir læknar halda umræðunni í gíslingu og fjölmiðlamenn sem halda umræðunni niðri. Af hverju mega ekki heyrast allar skoðanir og svo metur bara hver fyrir sig?“


Tengdar fréttir

Óttast ekki höfnun

Davíð Oddsson, Hildur Þórðardóttir og Elísabet Jökulsdóttir mættust í föstudagsviðtalinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×