Fastir pennar

Til skammar er að rukka fyrir grunnskólann

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Með upphafi skólahalds kemst tilveran í fastari skorður hjá fjölda barna eftir sumarfrí. Vinir hittast á ný og þau sem eru að taka sín fyrstu skref í námi hlakkar til að takast á við ný viðfangsefni.

Upphaf skólahalds getur hins vegar verið hluta foreldra nokkurt áhyggjuefni líkt og greint er frá í umfjöllun Fréttablaðsins í dag. Kostnaður vegna námsgagna fyrir grunnskólabörn er mjög mismunandi á milli skóla og sveitarfélaga.

Sums staðar er fólk gert út af örkinni með nákvæma innkaupalista og annars staðar innheimta skólar fast gjald og gögnin eru afhent í skólanum. Sú leið virðist alla jafna ódýrari.

Fólk með tvö til þrjú börn á framfæri getur hins vegar staðið frammi fyrir viðbótarkostnaði upp á tugi þúsunda. Undir því stendur fólk misvel.

Svo virðist sem um falinn vanda sé að hluta, því einstakir kennarar og svo góðgerðarsamtök á borð við Hróa Hött barnavinafélag (HHB) hafa hlaupið undir bagga með börnum úr efnaminni fjölskyldum og lagt út fyrir námsgögnum, matarkostnaði og fleiri útgjaldaliðum sem tengjast skóla- og tómstundahaldi.

Umfangið er óvíst en ljóst að það er nokkuð. HHB veitti í fyrra 90 styrki til barna í 16 af 182 grunnskólum landsins.

Ísafjarðabær hefur gengið á undan með góðu fordæmi og útvegar börnum í grunnskólum fjögurra byggðakjarna þess sveitarfélags námsgögn endurgjaldslaust.

Fagnaðarefni er að Samband íslenskra sveitarfélaga ætli að taka málið upp á næstunni, eftir áskoranir Barnaheilla og Heimilis og skóla um gjaldfrjálsan grunnskóla.

Og auðvitað á það gjaldfrelsi líka að ná til mötuneyta skólanna. Sögur á borð við þær að svöngum börnum sé vísað úr í matarröð síns skóla vegna útistandandi reikninga foreldranna eru okkur ekki sæmandi sem þjóð.

Upp kemur í hugann mynd af Ólíver Twist með matarskálina biðjandi um meira.

Ef einhver manndómur er í sveitarstjórnarfólki þessa lands þá kemur það sér saman um stefnu í skólamálum þar sem mismunun er útrýmt og landið fær staðið undir skuldbindingum sínum samkvæmt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

Hér á grunnskóli að vera gjaldfrjáls með öllu. Þannig eru öll börn jafnsett í sínum skóla.

Markmiðið er að gera sjálfboðaliðastarf á borð við það sem HHB stendur fyrir óþarft.

Taka má undir orð Sigríðar Jónsdóttur, formanns samtakanna, í blaðinu í dag þar sem hún segir sjálfsagt að bæði máltíðir barna og skólagögn standi þeim til boða án greiðslu, sem og tómstundastarf sem brúi bilið yfir vinnudaginn.






×