Til allra fórnarlamba hjónaskilnaða á Íslandi François Scheefer skrifar 2. október 2014 07:00 „Yndislega barnið mitt, sem þú verður alla tíð til endaloka. Þú komst eins og engill til jarðar og við foreldrar þínir tókum stolt á móti þér og vildum veita þér ástúð og alla þá hamingju sem þú átt skilið. Dag einn hvarfst þú á braut úr mínu daglega lífi, vegna afleiðinga umgengnisbrota.“ En hér á Íslandi kemur þjóðfélagið þannig fyrir sjónir að það tekur kerfisbundið málstað mæðra, án tillits til aðstæðna, jafnvel þótt sannað sé að þær hafi framið alvarleg afbrot og séu skaðlegar hagsmunum barnanna, er ekkert tillit tekið til þess. Þetta birtist í hnotskurn þannig að barnalögin og jafnvel beiting þeirra sýna greinilega hlutdrægni gagnvart móður og niðurlægingu til feðra og alþjóðasamningar eru fótumtroðnir.Börn skilja ekki við foreldra sína… Umræðuefnið virðist vera tabú og feður hafa enga rödd eða tilvist í umgengnismálum og enn þá verri stöðu ef þeir eru erlendir (það eru jafnvel til bæklingar á ólíkum erlendum tungumálum fyrir „réttindi erlendra kvenna og mæðra“! En ekkert fyrir karlmenn og feður!). Sérstaklega fyrir feður er baráttan mjög erfið, andlega og líkamlega, og þess vegna kjósa margir feður að leggja upp laupana, fyrirlitnir, eignalausir, stundum smánaðir af kerfinu og jafnvel mjög oft fyrir hvatningu þeirra eigin lögmanna. Hvernig geta menn kallað það „tapað mál“ þegar um barn eða börn manns er að ræða og gefist upp? En ég er ekki þannig, það er ekki til í eðli mínu eða menningu minni: fjölskyldan og börnin eru heilög fyrir mér. Ég hef alltaf barist löglega fyrir göfugu málefni með því að leyfa dóttur minni að vaxa úr grasi og fá að lifa með báðum foreldrum sínum. Ég hef barist fyrir því að hún fái að búa til skiptis hjá föður og móður og reynt að byggja upp friðsælt umhverfi í jafnvægi og bera virðingu fyrir öðrum, án þess að hallmæla neinum og síst af öllum móður hennar. Hvað er auðveldara en að ráðskast með barn? Einfaldlega að hindra öll möguleg samskipti og umgengnisrétt við barnið, og jafnvel það margendurtekið, er það í raun ekkert í Barnalögum sem getur komið í veg fyrir þessi brot til frambúðar. T.d., dóttir mín hefur ekki varið nema 8% af lífi sínu með mér á síðustu 13 árum! Þrátt fyrir þetta, hef ég alltaf verið til staðar fyrir hana, hef alltaf hlustað á hana, alltaf verið reiðubúinn til að hjálpa henni, verið til ráðgjafar, til að hugga og lækna þegar þörf er á, leyft henni að upplifa fjöldann allan af hlutum á Íslandi, gert henni kleift að vaxa og dafna og ná árangri í lífinu.Ekki á þeirra ábyrgð Ég vil að hún viti, eins og þúsundir annarra barna á Íslandi og það er ekki á þeirra ábyrgð, þessi fjölskylduharmleikur sem hendir okkur öll, hún er fyrst og fremst fórnarlamb, eins og þúsundir annarra barna á íslandi. Ég, sem foreldri, rétt eins og þúsundir annarra í landinu, er líka fórnarlamb ásamt allra meðlima föðurfjölskyldna, en það er fyrst og fremst barnið sem þjáist mest. Verandi fórnarlamb þá hefur hún kannski ekki aðra kosti. Ég ásaka hana ekki. Rétt eins og önnur fórnarlömb foreldrafirringar (P.A.S.), hefur hún ef til vill tapað áttum og veit ekki lengur hvað er rétt eða rangt, miðað við þau áhrif sem eru hömruð í hana. En ég vil að hún viti og ég vona að hún verði nógu sterk til að skilja og berjast fyrir því að sannleikurinn komi í ljós. En nú líður senn að brottför, til þess að berjast gegn sjúkdómnum, til að vernda sjálfan mig, til þess að lifa af og halda áfram að berjast fyrir réttindum okkar, virðingu fyrir feðrum, mun ég snúa á heimaslóðir okkar, til okkar þjóðar, og ég held enn þá í vonina… „Að lifa án vonar, er að hætta að lifa,“ sagði Dostojevski. Vonin fylgir mér. Dyr mínar munu alltaf standa opnar fyrir þig, dóttir mín, síminn minn mun alltaf vera tengdur á hvaða tíma sem er… Faðir, sem elskar barnið sitt eins og aðrir feður í þúsundatali. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Stuðningur úr óvæntri átt Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Konur sem eiga ekki að eignast börn Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Hlutabréfafjárfesting er langtímafjárfesting Davíð Björnsson Skoðun Bændur eru líka neytendur Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Vinstri gráir Yngvi Óttarsson Skoðun Framsókn klárar verkin Halla Signý Kristjánsdóttir Skoðun Gleymdu börnin Kolbrún Pálsdóttir Skoðun Sameinum 2. og 3. deild karla í knattspyrnu Bergvin Oddsson Skoðun Þjóðarópera - stórt skref til framtíðar Andri Björn Róbertsson Skoðun Skynsamlegt að selja Íslandsbanka Teitur Björn Einarsson Skoðun Skoðun Skoðun Sameinum 2. og 3. deild karla í knattspyrnu Bergvin Oddsson skrifar Skoðun Skynsamlegt að selja Íslandsbanka Teitur Björn Einarsson skrifar Skoðun Gleymdu börnin Kolbrún Pálsdóttir skrifar Skoðun Vinstri gráir Yngvi Óttarsson skrifar Skoðun Bændur eru líka neytendur Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlutabréfafjárfesting er langtímafjárfesting Davíð Björnsson skrifar Skoðun Stuðningur úr óvæntri átt Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Loftslagsmál eru orkumál Nótt Thorberg skrifar Skoðun Framsókn klárar verkin Halla Signý Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þjóðarópera - stórt skref til framtíðar Andri Björn Róbertsson skrifar Skoðun Veiðum hval - virðum lög Þorsteinn Sæmundsson skrifar Skoðun Bestu árin Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Sigríður Gísladóttir skrifar Skoðun Brunavarnir á byggingarsvæðum Böðvar Tómasson skrifar Skoðun Rödd þjóðarinnar Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Opið bréf til matvælaráðherra - dýraníð í Borgarbyggð Árni Stefán Árnason skrifar Skoðun 1.500 undirskriftir fyrir forseta Björn Leví Gunnarsson,Indriði Ingi Stefánsson skrifar Skoðun Líknardeild Landspítala 25 ára Ólöf Ásdís Ólafsdóttir,Arna Dögg Einarsdóttir skrifar Skoðun Hverjum er treystandi? Tjáningarfrelsið og upplýst umræða Helgi Áss Grétarsson skrifar Skoðun Þurfum við að tala um endó? Lilja Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Konur sem eiga ekki að eignast börn Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Nýr Kjalvegur - Hraðbraut í gegnum hálendið Ágústa Ágústsdóttir skrifar Skoðun Óvinsælastur í heimi Árni Pétur Árnason skrifar Skoðun Margföldun raforkuverðs Högni Elfar Gylfason skrifar Skoðun Orka, loftslag og náttúra Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar Skoðun Vorleysingar vitundarinnar á ævikvöldinu Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Nærandi ferðaþjónusta Hildur Guðbjörg Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Boðskapur frá forsetaframbjóðanda Ásdís Rán Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Opinber umræða fyrir hvern? Þorbjörg Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun „Þetta reddast!“ Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Er fatlað fólk í geymslunni þinni? Kjartan Þór Ingason skrifar Sjá meira
„