Bílar

Tiguan fær tvo bræður

Finnur Thorlacius skrifar
Volkswagen Tiguan.
Volkswagen Tiguan. Automobilemag
Volkswagen ætlar að fjölga útgáfum jepplingsins Tiguan um tvær, þ.e. þriggja sætaraða lengri bíl og coupe-útgáfu. Langa útgáfa hans verður með sæti fyrir 7 farþega og coupe-útgáfan verður ekki ósvipaður bíll og BMW X4 og Range Rover Evoque.

Volkswagen Tiguan var kynntur af nýrri kynslóð á bílasýningunni í Frankfürt síðasta haust og Volkswagen vill nýta sér smíði þess bíls til fulls og bjóða hann í sem flestum útgáfum þar sem það kostar fyrirtækið ekki svo mikið í þróunarkostnaði.

Volkswagen mun fyrst markaðssetja 7 manna útgáfuna þó ekki sé komið á hreint hvenær nákvæmlega hann kemur á götuna. Sá bíll verður líklega eina útgáfa hans sem boðin verður til sölu í Bandaríkjunum. Sá bíll verður smíðaður í verksmiðjum Volkswagen í Mexíkó og í Kína.

Ekki er síðan loku skotið fyrir það að Volkswagen muni svo enn bæta við tveimur gerðum bílsins enn, þ.e. kraftmikilli R-útgáfu og tengiltvinnbíl. Volkswagen hefur nú þegar selt yfir tvær milljónir Tiguan jepplinga frá árinu 2007 og þessar nýju útgáfur bílsins munu vafalaust auka enn söluna á þessum vinsæla bíl og ekki skemmir nýtt og fallegra útlit hans með nýrri kynslóð bílsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×