Golf

Tiger Woods verður meðal þátttakenda á Players meistaramótinu

Tiger Woods er að komast af stað á ný.
Tiger Woods er að komast af stað á ný. Getty
Tiger Woods gaf það út á Twitter í dag að hann muni taka þátt í Players meistaramótinu sem fram fer á TPC Sawgrass vellinum en hann hefur tvisvar sigrað á þessu stóra móti sem oft er nefnt fimmta risamótið í golfheiminum.

Woods segir á Twitter að hann vonist eftir því að endurtaka leikinn frá árinu 2013 þar sem hann sigraði með tveimur höggum en hann sigraði einnig á mótinu árið 2001.

Players mótið fer fram sjötta til tíunda maí en þessi tilkynning Woods kemur degi eftir að Jack Nicklaus gaf út að Woods myndi vera með á Memorial mótinu sem Nicklaus heldur sjálfur ár hvert í júní.

Woods tók sér níu vikna frí frá golfi áður en hann sneri til baka á Masters mótinu fyrr í apríl en hann endaði þar í 17. sæti og sýndi að hann væri kominn til baka til þess að keppa við þá bestu á ný eftir erfiða tíma fyrr á árinu þar sem bakmeiðsli gerðu honum lífið leitt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×