Golf

Tiger Woods spilar ekki golf á árinu 2016

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Tiger Woods hefur hætt við þátttöku á PGA-meistaramótinu og umboðsmaður hans segir að Woods muni ekki taka þátt í golfmóti á þessi ári. ESPN segir frá.

PGA-meistaramótið er fjórða og síðasta risamót ársins og fer að þessu sinni fram á vegum Baltusrol golfklúbbsins í Springfield í New Jersey 28. til 31. júlí.

Tiger Woods er enn að jafna sig eftir bakmeiðsli en hann hefur farið í þrjár bakaðgerðir síðan í mars 2014. Sú síðasta var síðasta haust.  

Með því að missa að PGA-meistaramótinu hefur Tiger misst af fjórum risamótum í röð. Hann hefur ekki tekið þátt í golfmóti síðan í ágúst 2015.

Tiger Woods var skráður til keppni bæði á opna breska mótinu og á PGA-meistaramótinu en tilkynnti mótshöldurum í tíma að hann yrði ekki með. Harold Varner III mun taka pláss Tiger Woods á PGA-meistaramótinu.

Mark Steinberg, umboðsmaður Tiger Woods, sagði í viðtali við ESPN að Tiger væri búinn að ákveða að sleppa alveg þessu tímabili. Þeir telja ekkert vit í því að reyna að byrja að keppa í haust þegar svona fá mót eru eftir af tímabilinu.

Tiger verður því heldur ekki með í Ryder-bikarnum sem fer fram í Chaska í Minnesota 30. september til 2. október.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×