Golf

Tiger Woods rásin gæti orðið vinsæl á Opna breska

Tiger Woods.
Tiger Woods. vísiri/getty
Sumir horfa á golfmót eingöngu til þess að fylgjast með Tiger Woods. Bandarískir sjónvarpsáhorfendur sem vilja ekkert annað en Tiger munu geta horft á ekkert annað en Tiger á Opna breska meistaramótinu í næstu viku.

Tiger missti af bæði Masters-mótinu og Opna bandaríska vegna meiðsla. Áhorfstölur hrundu þar sem hann var fjarverandi.

ESPN veit vel hvað fólkið vill og ESPN3-rásin verður eingöngu með Tiger á dagskránni meðan á mótinu stendur. Honum verður fylgt eftir hvert fótmál og aðdáendur hans eiga eflaust eftir að fagna þessari nýbreytni.

Tiger kann vel við sig á Hoylake-vellinum en hann fór á kostum þar árið 2006 og rúllaði þá upp Opna breska mótinu.

Opna breska meistaramótið verður í beinni útsendingu á Golfstöðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×