Golf

Tiger Woods niðurbrotinn og getur ekki sofið

Úti er ævintýri. Tiger og Vonn er allt lék í lyndi.
Úti er ævintýri. Tiger og Vonn er allt lék í lyndi. vísir/getty
Síðustu dagar hafa verið Tiger Woods afar erfiðir.

Það var tilkynnt síðasta sunnudag að samband hans og skíðadrottningarinnar Lindsey Vonn væri búið. Þann sama dag voru liðin níu ár síðan faðir hans féll frá.

„Þessir síðustu þrír dagar hafa verið hræðilegir fyrir mig. Þetta hefur reynt mikið á mig," sagði niðurbrotinn Woods.

„Þessir dagar eru alltaf erfiðir fyrir mig en sérstaklega erfiðir út af sambandsslitunum. Ég hef ekki einu sinni getað sofið."

Þó svo Tiger sé ósofinn og andlega hliðin líklega ekki upp á sitt besta þá ætlar hann að spila á Players Championship í vikunni en mótið fer fram á Sawgrass-vellinum.

Það verður hans fyrsta mót síðan Masters lauk en þar varð Tiger í 17. sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×