Golf

Tiger Woods meðal keppenda á Memorial

Woods og Nicklaus eru góðir félagar.
Woods og Nicklaus eru góðir félagar. vísir/Getty
Tiger Woods er meðal þátttakenda á Memorial mótinu sem fram fer á Muirfield vellinum en þetta er síðasta mótið sem hann tekur þátt í áður en annað risamót ársins, US Open, hefst seinna í mánuðinum.

Woods leikur með Patrick Reed og Jason Day fyrstu tvo dagana en Memorial mótið er haldið af goðsögninni Jack Nicklaus.

Fleiri stör nöfn eru meðal þátttakenda en þar má nefna Rickie Fowler, Phil Mickelson, Dustin Johnson og Jordan Spieth.

Besti kylfingur heims, Rory McIlroy, tekur sér þó frí um helgina en hann gæti þurft á því að halda eftir að hafa misst af niðurskurðinum í síðustu tveimur mótum.

Það verður spennandi að sjá hvort að Tiger Woods verði í toppbaráttunni um helgina en hann hefur sigrað á mótinu fimm sinnum áður og kann greinilega vel við sig á Muirfield vellinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×