Golf

Tiger Woods byrjaður að slá full golfhögg á ný

Kári Örn Hinriksson skrifar
Tiger er staðráðinn í að vinna bug á bakmeiðslunum fyrir fullt og allt.
Tiger er staðráðinn í að vinna bug á bakmeiðslunum fyrir fullt og allt. Vísir/Getty
Tiger Woods er farinn að slá full golfhögg á ný en þessi frábæri kylfingur hefur átt í miklum vandræðum á árinu vegna bakmeiðsla sem hafa hrjáð hann.

Woods lék síðast keppnisgolf í ágúst þar sem hann missti af niðurskurðinum á PGA-meistaramótinu en hann missti af Masters mótinu og Opna bandaríska meistaramótinu vegna aðgerðar sem hann fór í á baki.

Í endurkomu sinni gekk honum afar illa og eftir misheppnað högg upp úr glompu á lokahringnum á Bridgestone-Invitational mótinu var ljós að bakið var farið að trufla hann verulega á ný. Woods gaf út í kjölfarið að hann myndi ekki gefa kost á sér í Ryderlið Bandaríkjanna ásamt því að hann ætlaði að taka sér frí frá keppnisgolfi þangað til í desember til þess að jafna sig að fullu af meiðslunum.

Læknarnir hafa sagt Tiger að hann geti byrjað að slá full högg aftur sem hann er byrjaður að gera,“  sagði umboðsmaður Woods, Mark Steinberg, í viðtali við USA Today fyrr í vikunni. „Hann hefur undanfarið bara verið að vinna í stutta spilinu meðan hann jafnar sig alveg í bakinu en honum líður vel þessa dagana og er að taka framförum.

Woods hefur gefið það út að hann stefni á endurkomu á golfvöllinn í byrjun desember þegar að Hero World Golf Challenge mótið fer fram á Isleworth vellinum í Flórída en hann er einnig gestgjafi mótsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×