Golf

Tiger verður sá sem hlær síðastur

Tiger og Lefty.
Tiger og Lefty. vísir/getty
Phil Mickelson hefur trú á því að Tiger Woods verði fljótur að hrista af sér slenið.

Tiger spilaði sinn versta hring á atvinnumannaferlinum á dögunum og hefur í raun lítið gengið hjá honum síðustu misseri.

„Tiger verður sá sem hlær síðastur. Stutta spilið hjá honum er líklega það besta sem hefur sést í sögunni. Ég held reyndar að hann hafi spilað golf betur en nokkur annar í sögu golfsins," sagði Mickelson.

„Stutta spilið er oft það fyrsta sem fer þegar menn verða óöruggir. Það kemur líka fljótt til baka. Ég hef enga trú á því að hann verði í einhverjum vandræðum. Það hafa allir lent í þessu og það er auðvelt að laga stutta spilið.

„Þetta er stutt sveifla og því lítið sem þarf að laga. Ég sé ekki fyrir mér að það taki Tiger meira en tvær vikur að laga þetta hjá sér. Hann á eftir að koma fljótt til baka."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×