Golf

Tiger þakkar stuðninginn: „Eitthvað sem ég mun aldrei gleyma“

Anton Ingi Leifsson skrifar
Tiger þakkar fyrir sig.
Tiger þakkar fyrir sig. vísir/getty
Tiger Woods spilaði afar vel á Opna breska meistaramótinu um helgina en kappinn virðist vera að nálgast sitt gamla form.

Tiger endaði í sjötta sæti en hann var einungis þremur höggum frá toppnum en mótið vann Ítalinn Francesco Molinari.

Tiger er að nálgast sitt betra form eftir afar erfið ár en þessi magnaði kylfingur hefur verið að glíma við ótrúleg meiðsli undanfarin ár.

Til að mynda hefur hann ekki tekið þátt í Opna breska síðan 2015 en þá komst hann ekki í gegnum niðurskurðinn.

Hann ákvað því að þakka stuðninginn á Twitter-síðunni í dag þar sem rúmlega sex milljónir fylgja honum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×