Golf

Tiger spilaði æfingahring á Augusta

Tiger Woods.
Tiger Woods. vísir/getty
Tiger Woods er enn að íhuga hvort hann eigi að taka þátt á Masters-mótinu og hann athugaði stöðuna á sínum leik í gær.

Þá tók hann æfingahring á Augusta-vellinum en Tiger hefur verið frá í nokkurn tíma vegna meiðsla. Hann er ekki enn búinn að gefa út hvort hann taki þátt á mótinu.

Woods hefur unnið Masters fjórum sinnum á ferlinum en leikformið hefur ekki verið gott síðustu ár og kylfingurinn er hruninn niður í 104. sætið á heimslistanum.

Tiger skrifaði á dögunum að hann myndi snúa aftur þegar hann væri tilbúinn. Ekki fyrr.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×