Golf

Tiger reynir að lengja keppnistímabilið sitt um helgina

Kári Örn Hinriksson skrifar
Tiger gæti verið á leiðinni í frí.
Tiger gæti verið á leiðinni í frí. Getty
Tiger Woods mun vera meðal þátttakenda á Wyndham meistaramótinu um helgina en mótið er það síðasta á venjulegri dagskrá PGA-mótaraðarinnar á tímabilinu.

Hann hefur aldrei spilað í mótinu áður en það gerir hann nú til þess að reyna að klifra upp stigalista mótaraðarinnar og komast inn í FedEx-úrslitakeppnina sem hefst í næstu viku.

Aðeins 125 efstu kylfingarnir á stigalista PGA-mótaraðarinnar komast inn í úrslitakeppnina en Tiger er í 187. sæti eins og stendur mjög misjafnt gengi á árinu.

Hann þarf því annaðhvort að sigra eða enda í öðru sæti um helgina til þess tryggja sig inn í næsta mót en takist honum það ekki er þessi fyrrum besti kylfingur heims kominn í frí frá keppnisgolfi þangað til í október þegar að PGA-mótaröðin hefst á ný.

Það verður áhugavert að fylgjast með hvort að Tiger nái að rétta úr kútnum og halda tímabilinu sínu gangandi en hann hefur misst af niðurskurðinum í fimm mótum í ár, síðast á PGA-meistaramótinu um síðustu helgi.

Wyndham meistaramótið er leikið á Greensboro vellinum í Norður-Karólínufylki en mótið er það sama og Ólafur Björn Loftsson vann sér þátttökurétt í árið 2011.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×