Golf

Tiger neitar að hafa rekið þjálfarann sinn

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Tiger púttar hér á Quicken Loans National mótinu.
Tiger púttar hér á Quicken Loans National mótinu. Vísir/getty
Tiger Woods segir að það sé ekki rétt að hann hafi rekið sveifluþjálfarann sinn, Chris Como eftir Opna breska meistaramótið. Fjölmiðlar ytra greindu frá því að hann hefði ákveðið að segja upp samstarfi sínu við Como eftir að hafa misst af niðurskurðinum á tveimur stórmótum í röð.

Tiger sem hefur átt í miklum vandræðum undanfarin ár ákvað að fá Como til að aðstoða sig í nóvember síðastliðnum í von um að ná að laga spilamennsku sína. Missti hann í fyrsta sinn á ferlinum af niðurskurðinum á tveimur stórmótum í röð á dögunum sem hefur leitt til þess að hann hefur fallið niður í 266. sæti á styrkleikalistanum í golfi.

Hefur hann ekki náð sér á strik á ný allt frá því að upp komst um líf hans utan hjónabandsins árið 2009 en þá kom í ljós að hann hefði haldið framhjá eiginkonu sinni, Elin Nordegren, til margra ára.

Tiger sat fyrir svörum blaðamanna eftir fyrsta hring á Quicken Loans National mótinu en Tiger lauk fyrsta degi á 68 höggum, þremur höggum undir pari, þar sem hann neitaði að hafa rekið Como sem var hvergi sjáanlegur á svæðinu. Umboðsmaður Tigers tók í sama streng og sagðist vera að heyra af þessu fyrst frá fréttamönnunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×