Golf

Tiger minnti á sig með frábærum hring

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Tiger er samtals á sex höggum undir pari.
Tiger er samtals á sex höggum undir pari. vísir/getty
Tiger Woods lék vel á öðrum hringnum á Hero World Challenge mótinu á PGA-mótaröðinni.

Tiger lék á 65 höggum í dag, eða á sjö höggum undir pari. Tiger lék einn í dag en Justin Rose, meðspilari hans, gat ekki keppt vegna meiðsla.

Tiger er samtals á sex höggum undir pari og er kominn upp í 9. sætið. Tiger hækkaði sig um átta sæti frá því í gær þegar hann lék á einu höggi yfir pari.

Bandaríkjamaðurinn Dustin Johnson og Japaninn Hideki Matsuyama eru efstir og jafnir á 12 höggum undir pari.


Tengdar fréttir

Tiger á einu höggi yfir pari

Tiger Woods lék fyrsta hringinn á Hero World Challenge mótinu á 73 höggum, eða einu höggi yfir pari. Mótið fer fram á Albany-vellinum á Bahamaeyjum.

Tiger íhugaði alvarlega að hætta

Tiger Woods snýr aftur á golfvöllinn í dag en það sá hann ekki endilega fyrir sér er hann lá heima hjá sér mjög þjáður eftir tvær bakaðgerðir.

Tiger stressaður fyrir endurkomunni

Það eru liðnir 470 dagar síðan Tiger Woods tók síðast þátt í golfmóti. Á fimmtudag snýr hann aftur út á golfvöllinn.

Spieth: Sýnið Tiger þolinmæði

Jordan Spieth hefur trú á því að Tiger Woods geti komist aftur í hóp bestu kylfinga heims. Hann segir þó að það gæti tekið tíma og að fólk verði að sýna Tiger þolinmæði.

Getur Tígurinn enn bitið frá sér?

Golfheimurinn gleðst í dag því nú snýr einn besti kylfingur allra tíma, Tiger Woods, loksins aftur á golfvöllinn. Biðin hefur verið löng en kylfingurinn segist ­loksins vera tilbúinn. Hann er stressaður og ­getur ekki beðið eftir því að mótið hefjist.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×