Golf

Tiger komst ekki í gegnum niðurskurðinn á Torrey Pines

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Tiger lék á pari í gær en er dottinn úr leik.
Tiger lék á pari í gær en er dottinn úr leik. vísir/getty
Endurkoma Tiger Woods á PGA-mótaröðina í golfi gekk ekki eins og vonast var eftir en Tiger mistókst að komast í gegn um niðurskurðinn og datt því úr leik eftir aðeins 36 holur í San Diego í gærkvöld.

Tiger entist því stutt á Farmers Insurance-mótsinu en þetta var fyrsta mót hans á mótaröðinni í tæplega eitt og hálft ár.

Sneri hann aftur á mótaröðina á vellinum þar sem hann vann Opna bandaríska meistaramótið árið 2008 og hefur alls unnið átta mót.

Tiger byrjaði ágætlega í gær og fékk fugl á þriðju holu en skollar á 5. og 10. braut gerðu honum erfitt fyrir.

Sjá einnig: Versta byrjun Tiger á ferlinum

Tókst honum að krækja í annan fugl og klára daginn á pari en slakur hringur hans á föstudaginn kostaði hann á endanum.

Endaði hann því á að komast ekki í gegn um niðurskurðinn en þekktir golfarar á borð við Dustin Johnson, Jason Day og Rickie Fowler, komust heldur ekki í gegn um niðurskurðinn.

Breski kylfingurinn Justin Rose er með eins högga forskot eftir tvo hringi á átta höggum undir pari en Adam Hadwin og Brandt Snedeker eru ekki langt undan.

Sýnt verður frá þriðja degi Farmers Insurance-mótsins á Golfstöðinni en útsending hefst klukkan 18:00.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×