Golf

Tiger heldur enn í vonina

Einar Sigurvinsson skrifar
Tiger Woods.
Tiger Woods. vísir/getty
„Ég á enn möguleika ef ég spila mjög, mjög góðan hring á morgun. Það gæti gefið mér möguleika á stela óvæntum sigri,“ sagði Tiger Woods að loknum þriðja keppnishring Arnold Palmer boðsmótsins sem fer fram á Bay Hill í Flórída. Mótið er hluti af bandarísku PGA-mótaröðinni.

Tiger Woods lék hringinn á þremur höggum undir pari. Hann er sjö höggum á eftir Svíanum Henrik Stenson sem er 12 höggum undir pari að loknum þremur hringjum. Stenson lék hringinn á einu höggi undir pari þrátt fyrir að fá þrjá skolla.

Einu höggi á eftir Stenson er hinn 24 ára gamli Bryson DeChambeau en hann lék hringinn á pari. Næstur á eftir honum er goðsögnin Rory McIlroy sem er 10 undir pari eftir þrjá hringi. McIlroy spilaði frábært golf í gær og fór þriðja hringinn fimm höggum undir pari.

„Ég byrjaði daginn rétt fyrir neðan tíu efstu sætin og vildi að minnsta kosti eiga möguleika fyrir morgundaginn, svo þetta var frábær dagur. Ég gat ekki beðið um meira,“ sagði McIlroy í lok dagsins.

Bein útsending frá lokadegi mótsins hefst á Golfstöðinni í kvöld klukkan 16:30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×