Golf

Tiger fataðist flugið

Anton Ingi Leifsson skrifar
Tiger spilaði ekki nægilega vel á þriðja hringnum í gær.
Tiger spilaði ekki nægilega vel á þriðja hringnum í gær. vísir/getty
Bandaríkjamaðurinn Jason Bohn spilaði sitt besta golf á sínum ferli þegar hann spilaði á 61 höggi á Greenbrier Classic í vestur Virginíu í gær.

Bohn er á ellefu undir pari ásamt þremur öðrum, en síðasti hringurinn fer fram í dag. Hann lék á alls oddi og fékk tíu fugla, en hann endaði hringinn á níu undir pari.

Tiger Woods dróst aðeins úr lestinni í gær, en hann spilaði á 71 höggi og er sjö höggum á eftir efstu mönnum á mótinu.

Bubba Watson, sem hefur unnið Masterinn í tvígang, er sjö höggum undir pari, fjórum höggum á eftir þeim fremstu.

Sýnt verður frá mótinu á Golfstöðinni í dag og hefst útsendingin klukkan 17:00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×