Golf

Tiger er of stoltur til að biðja mig um aðstoð

Harmon og Tiger saman á vellinum.
Harmon og Tiger saman á vellinum. vísir/getty
Tiger Woods er í miklum vandræðum og gamli þjálfarinn hans, Butch Harmon, er til í að hjálpa.

„Ef hann hefur áhuga þá myndi ég hjálpa honum með glöðu geði. Ég held samt ekki að hann muni biðja um aðstoð því hann sé of stoltur," sagði Harmon.

Þeir hættu að vinna saman árið 2003 en þá fór Woods að vinna með Hank Haney.

Það er búið að vera brjálað að gera hjá Harmon síðan en hann hefur er að vinna með Phil Mickelson, Dustin Johnson, Brandt Snedeker og Jimmy Walker.

„Sem mikill golfaðdáandi þá er erfitt að fylgjast með Tiger þessa dagana. Það leynir sér ekki að það er algjör skortur á sjálfstrausti hjá honum."

Harmin segir að það sé rétt hjá Tiger að taka sér gott frí meðan hann byggir sig upp andlega sem og líkamlega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×