Golf

Tiger dregur sig úr keppni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Tiger svekktur á fyrsta hringnum í gær.
Tiger svekktur á fyrsta hringnum í gær. vísir/getty
Meiðslavandræðum Tiger Woods virðist ekki vera lokið en hann hefur dregið sig úr keppni í Dubai vegna meiðsla eftir aðeins einn hring.

Woods var í miklum vandræðum á fyrsta hringnum þar sem hann kom í hús á 77 höggum eða fimm höggum yfir pari.

Umboðsmaður Tigers sagði að hann hefði fengið krampa í bakið á hringnum og því hefði hann ákveðið að draga sig úr keppni. Þetta ku þó ekki vera sömu bakmeiðsli og voru að plaga hann áður.

Tiger snéri aftur í desember eftir fimmtán mánaða fjarveru vegna meiðsla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×