Golf

Tiger búinn | Styttist í Rory

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Tiger náði að ljúka leik
Tiger náði að ljúka leik vísir/getty
Tiger Woods er búinn að ljúka leik á opna breska meistaramótinu í golfi sem leikið er á Royal Liverpool golfvellinum á Englandi. Hann lauk leik á sex höggum yfir pari.

Þetta er fyrsta mótið sem Tiger Woods klárar eftir að hafa gengist undir aðgerð á baki fyrr á árinu. Woods lék ágætlega á fyrsta hringnum en síðustu þrír hringirnir voru erfiðir fyrir hann.

Woods er í 69. sæti þegar fyrstu kylfingar eru búnir að ljúka leik en hann lék á þremur höggum yfir pari í dag.

Rory McIlroy sem er efstur fyrir loka daginn fer af stað klukkan 13:40 en með honum í síðasta ráshóp er Rickie Fowler en sex höggum munar á þeim.

Kylfingarnir á eftir McIlroy þurfa að vonast eftir stórslysi hjá Norður-Íranum unga auk þess sem þeir þurfa að ná sér vel á strik sjálfir.

Sergio Garcia og Dustin Johnson fara út næst síðastir klukkan 13:30 og eru þeir sjö höggum á eftir McIlroy.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×