Golf

Tiger: Get ekki slegið jafn langt og ungu strákarnir

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Tiger Woods snýr aftur á morgun.
Tiger Woods snýr aftur á morgun. vísir/getty
Tiger Woods segist enn geta keppt við þá bestu í golfinu og unnið mót þrátt fyrir að geta ekki lengur slegið jafn langt og margir kylfingar.

Þessi 38 ára gamli fyrrverandi besti kylfingur heims snýr aftur á völlinn eftir meiðsli á morgun þegar hann keppir á heimsmótinu í Flórída.

„Tíminn hefur ekki enn verið sigraður og auðvitað getur maður ekki gert sömu hluti og maður gat áður gert. Ég get ekki slegið jafn langt og sumir af þessum ungum strákum gera. En það eru til aðrar leiðir til að vinna þegar maður er orðinn gamall,“ segir Tiger.

„Maður þarf ekki að vera líkamlega sterkari en allir þegar maður keppir í golfi. Maður þarf bara að mæta og spila. Ég er ekki orðinn fertugur þannig ég hef enn tíma.“

Tiger vann fjórtánda risamótið sitt árið 2008 en hefur ekki unnið slíkt síðan. Það verður alltaf ólíklegra að hann bæti met Jack Nicklaus sem vann átján risamót á sínum ferli.

Tiger varð af toppsæti heimslistans þegar allt sprakk í loft upp í einkalífi hans, en hann sneri aftur með stæl í fyrra og endurheimti toppsætið. Hann vann fimm mót árið 2013 og var kjörinn kylfingur ársins í ellefta sinn á ferlinum.

Árið í ár hefur aftur á móti verið hreinasta hörmung hjá Tiger. Hann vann ekki eitt mót og var aðeins einu sinni á meðal 25 efstu á PGA-móti. Hann lauk síðan leik á PGA-meistaramótinu þegar hann meiddist illa.

„Mér líður mög vel núna. Ég fór í gegnum alvöru endurhæfingu. Ég þarf bara að slá fleiri bolta, en ég finn ekki fyrir jafn miklum sársauka,“ segir Tiger Woods.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×