Lífið

Þýskur fjárhundur dansar við Flo Rida

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Myndband af þýskum fjárhundi dansa með eyrunum við lagið Low með Flo Rida nýtur nú töluverðra vinsælda á internetinu.

Myndbandið er afar fyndið en það er YouTube-notandi sem kallar sig Jaxson Rose sem setti það inn á síðuna.

Myndbandið hefur verið skoðað um tuttugu þúsund sinnum síðan það var sett inn fyrir nokkrum dögum enda er hundurinn með feykilega góðan takt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×